Alþingi:
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í dag:
„Ökutækjaeigendur á Íslandi hafa þurft að horfa upp á núna undanfarna mánuði stórhækkaða skatta og gjöld á ökutækjaeigendur. Ástæðan sem hv. stjórnarliðar og hæstv. ráðherrar gefa upp er uppsafnaður vandi í uppbyggingu samgönguinnviða.
En hvernig hljóma nú fjárlögin? Jú, vörugjöld af ökutækjum eiga að gefa 16,6 milljarða. Kílómetragjaldið á að gefa 43,4 milljarða. Bifreiðagjöld 15,5 milljarða. Samtals eru þetta 75 milljarðar bara í þessi þrjú gjöld. Ef við bætum síðan við kolefnisgjöldum, umferðaröryggisgjaldi o.s.frv. eru heildartekjur ríkisins af sköttum og gjöldum á ökutækjaeigendur komnar í 89 milljarða. Ef við bætum síðan við nýjum veggjöldum ríkisstjórnarinnar í gegnum innviðafélagið Göng og brú bætast þar við 1,8 milljarðar þannig að samtals er tæplega 91 milljarður tekinn í skatta og gjöld af ökutækjaeigendum á Íslandi. Þá eru ótaldar tekjur af virðisaukaskatti og því má áætla að heildartekjur ríkissjóðs séu um 95–100 milljarðar á hverju ári. Inni í þessu eru ekki þau gjöld sem áætlað er að taka í tengslum við Betri samgöngur hér á Reykjavíkursvæðinu.
En hvað er að gerast á sama tíma í samgönguáætlun? Að meðaltali er ríkisstjórnin á fyrsta tímabili að eyða 72 milljörðum í samgönguáætlun. Margir myndu halda að samgönguáætlun snerist bara um uppbyggingu vega og að byggja brýr og göng. Nei, í samgönguáætlun eru líka flugsamgöngur, ferjur, sjóvarnir o.s.frv., þannig að rök ríkisstjórnarinnar halda engu vatni þegar endalaust á að skattleggja ökutækjaeigendur um tugi milljarða umfram það sem verið er að setja í að byggja upp samgöngukerfið. 95–100 milljarðar og það er verið að setja 72 í samgönguáætlun.
Ef þetta, virðulegur forseti, er að hafa styrka hönd á stýri þá myndi ég frekar kjósa Bjössa á mjólkurbílnum.“