- Advertisement -

Kristrún segir Guðrúnu Hafsteindóttur hafa snúið sér við á punktinum

Alþingi -kílómetragjald:

Guðrún Hafsteinsdóttir:

„Það verður að vera samhengi á milli þess sem forsætisráðherra lofar fólki og þess sem ríkisstjórnin leggur til. Hvernig réttlætir hæstvirtur forsætisráðherra þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að sækja 4 milljarða kr. til viðbótar til heimila og fyrirtækja með hækkun kílómetragjaldsins þegar hún lofaði að hækka ekki skatta á vinnandi fólk?“

Kristrún Frostadóttir:

„Reyndar var breytingin þess eðlis að á næsta ári, 2027, samkvæmt fjármálaáætlun sem háttvirtur þingmaður sjálf afgreiddi þegar hún var hér við völd í meiri hluta og ráðherra í ríkisstjórn, stóð til að fá út úr þessum lið gjalda 7,5 milljarða. Ríkisstjórn sem nú er við völd hefur lækkað það niður í 4,5 milljarða. Þannig að spurningin ætti kannski frekar að vera: Af hverju ætlaði háttvirtur þingmaður að hækka kílómetragjöld svona mikið í fyrri ríkisstjórn en snýr sér svo við á punktinum þegar hún er komin í minni hluta og þykist ekki muna eftir því? Hér er um viðbótarkrónu að ræða ofan á tekjuhlutlausa kerfisbreytingu, kerfi sem hafði grafið undan getu okkar til að sinna viðhaldi. Þetta var ósanngjörn leið til að innheimta bifreiðagjöld því hún féll hlutfallslega á þá sem voru á eldri bílum og keyrðu lengri vegalengdir á bensínbílum. Þess vegna finnst mér þetta sanngjörn leið til að innheimta þessi gjöld.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: