- Advertisement -

Jón Gnarr

Stjórnmál:

Össur Skarphéðinsson skrifaði:

Vitaskuld er það verulegt áfall fyrir Viðreisn þegar öflugur einstaklingur eins og Jón Gnarr yfirgefur flokkinn.

Það er líka áfellisdómur yfir ráðherrum og forystu að þeir virðast ekki hafa verið í nægilegum tengslum við þingflokkinn til að skilja vanlíðan þingmanna. Þó ítrekar Gnarr þrisvar í viðtali við Vísi að Viðreisn sé eini flokkurinn sem hann eigi samleið með – og segist ekki ætla að hætta í flokknum!

Þau mál sem Jôn Gnarr nefnir eru fjarri því að vera fallin til pólítisks ágreinings – barnaverndarmál, málefni barna í neysluvanda, áherslur á frelsi einstaklingsins. Það er nokkuð ljóst að þingmaðurinn hefur upplifað sig í algeru tómarúmi, forystan ekki nennt að sinna honum, hlusta á hann eða verið upptekin við annað mikilvægara.

Úrsögnina er þvî varla hægt að túlka öðru vísi en sem vantraust á forystuna.

Það birtist líka í öðru. Jón Gnarr lýsir því að eftir tap þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB sé þingflokkurinn í áfalli. Eru réttu viðbrögðin að þegja tapið í hel?

Í máli hans kemur fram fullkomlega réttmæt gagnrýni á framkvæmd og skipulagningu kosningabaráttunnar í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem einhver stjôrnarþingmanna gagnrýnir hversu frámunalega illa var að henni staðið.

Í röðum stuðningsmanna stjórnarinnar er þó talað um það í öllum hornum, ekki síst innan Viðreisnar,- en enginn vill rjúfa friðinn og segja það upphátt fyrr en Jón Gnarr. Hafi hann heila þökk!

Mörgum finnst nefnilega þeir þurfa skýringar, lyktir, á framkvæmd baráttunnar sem felast í öðru en bara þeim að andstæðingar ESB hafi verið svo duglegir að ljúga. Það skýrir vitaskuld ekki hvernig tókst að snúa yfirburða fylgi upp í tap á tæpu sumri.

Ólafur Ragnar og Sólveig Anna skýra það ekki heldur. Skýringanna er að leita miklu nær Viðreisn.

Þessu skylt, segir Jón Gnarr, var þörf á því í kjölfar tapsins að Viðreisn skilgreindi stöðu sína upp á nýtt. Því hafnaði forystan í kjölfar Evróputapsins á þeim forsendum að Viðreisn sé ekki eins máls flokkur.

Það má vel vera. Skortur á því að gera upp kosningabaráttuna, skilgreina hvað fór úrskeiðis og læra af því skaðar hins vegar Evrópuhreyfinguna til framtíðsr Eða er baráttunni lokið? Hefur Viðreisn gefist upp?

Hræðsla Viðreisnar við að skilgreina stöðu sína í litrófi íslenskra stjórnmála er líka illskiljanleg því í nýjum aðstæðum felast líka tækifæri fyrir flokkinn. Í dag skilgreinir forystan sig til hægri en fylgið liggur mun lengra til vinstri.

Í stöðunni liggur þó „syntesa“ sem greinilega á ekki að skoða. Hvað ef Jón Gnarr býður upp á valkost sem byggir á einstaklingsfrelsi og dassi af pópúlisma? Gleymum þá ekki heldur að Ásmundur Einar bókstaflega bjargaði Framsókn fyrir nokkrum árum með áherslu á málefni barna.

Framtíðin felst ekki í því að sópa vandamálum dagsins undir teppið eða kaffæra sig með ferðalögum og annríki. Þá tapast að lokum meira en einn fyrrverandi borgarstjóri.

Jón Gnarr var á sínum tíma frábær borgarstjóri, með afbrigðum eftirminnilegur og án nokkurs vafa sá merkilegasti. Vonandi gengur honum vel í því sem framundan er. Mér þykir vænt um hann sem mann án þess að þekkja hann fyrir utan eitt faðmlag.

En það var hlýtt…


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: