- Advertisement -

Tilgangur verndarkerfisins er að veita einstaklingum vernd gegn ofsóknum eða stríði

Á dagskrá Alþingis í dag:

Úr greinargerðinni:

„Megintilgangur með ákvæðum frumvarpsins er annars vegar að tryggja að íslensk stjórnvöld hafi lagalegt svigrúm til að haga tímabundinni vernd vegna fjöldaflótta í samræmi við þróun aðstæðna í Úkraínu og, eftir því sem við á, sameiginlega evrópska framkvæmd og hins vegar að viðhalda skýru tímabundnu eðli úrræðisins. Komi ekki til lagabreytinga mun fimm ára hámark gildandi 3. og 4. mgr. 44. gr. laga um útlendinga renna sitt skeið í mars 2027.

Að þeim tíma liðnum er samkvæmt gildandi ákvæði heimilt að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sem getur, að öðrum skilyrðum uppfylltum, orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Með frumvarpinu er lagt til að lögbundinn hámarkstími tímabundinnar verndar verði lengdur úr fimm árum í sex. Einstaklingar munu eftir sem áður geta sótt um dvalarleyfi á öðrum lagagrundvelli og umsóknir þeirra verða þá metnar samkvæmt almennum reglum laga um útlendinga.“

Hér má lesa frumvarpið ásamt greinagerð þess.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: