Alþingi:
Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki:
„Það sem mig langar aðeins að velta upp hér eru húsnæðismálin, virðulegur forseti, og byrja á því að segja að þegar maður opnar fjárlögin og ætlar að fara að reyna að átta sig á því stóra máli, því risastóra máli sem við tölum ítrekað um hér á Alþingi, sem er staðan á húsnæðismarkaði, er hvað það er rýr umfjöllun um húsnæðisliðinn í fjárlögum. Þetta er um ein síða í fjárlögunum þar sem verið er að fjalla um þetta og markmið og mælikvarðarnir settir fram. Mér finnst alveg tilefni til þess, virðulegur forseti, að menn setji aðeins meira kjöt á beinin fyrir okkur þar til þess að átta okkur á því hvert stjórnvöld stefna í þessum málaflokki.
Að því sögðu langar mig að spyrja hæstvirtan ráðherra um hlutdeildarlánin. Ég sé að hér er ein lína um þau undir markmiði 1: Húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum, að hlutdeildarlán til fyrstu íbúðarkaupa verði efld enn frekar. Það er ekkert meira sagt um þetta.
…niður um rúma
3 milljarða.
Við höfum enga hugmynd um hvernig á að gera þetta og miðað við þau fjárframlög sem fara til húsnæðismála á þessu ári sjáum við að miðað við fjárlagaárið 2026–2027 eru framlögin að fara úr 25 milljörðum í tæpa 22, niður um rúma 3 milljarða. Þannig að ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti, hvort hæstv. ráðherra geti svarað mér aðeins varðandi hlutdeildarlánin, sérstaklega í ljósi þess að ég sé ekki að það sé gert ráð fyrir fjármunum í þau neins staðar.“
Ragnar Þór Ingólfsson húsnæðismálaráðherra:
„Hlutdeildarlánakerfið og þær mikilvægu breytingar sem voru gerðar á því í desember síðastliðnum gerðu það að verkum að fjöldi þeirra sem hafa sótt um hlutdeildarlán hefur stóraukist og það er fullt tilefni til að skoða hvort sú þróun haldi áfram. Við erum ekki búin að fá endanlegt mat á því hvað það þurfi mikið inn í kerfið til að það nái að uppfylla allar þær umsóknir sem berast inn í það. Þær tölur liggja einfaldlega ekki fyrir. Þær þyrftu þá mögulega að koma inn á næsta ári eða í fjárauka ef það þyrfti einhverja viðbót.
Sömuleiðis er mjög ánægjulegt að segja frá því að eins og kerfið var hugsað í upphafi er opnað fyrir það að gera uppbyggingarsamninga við uppbyggingaraðila sem hafa verið að breyta fyrirætlunum sínum um uppbyggingu á húsnæði. Fyrsti samningurinn var gerður við Þingvang í Hafnarfirði sem fékk íbúasamsetningu og skipulagi breytt til þess að semja um uppbyggingu inn í kerfið.
Við erum vongóð um að fleiri uppbyggingarsamningar séu fram undan þar sem verktakar hafa áhuga á að byggja inn í kerfið. Það er mikil þörf á því vegna stöðunnar á húsnæðismarkaði þar sem uppbyggingaraðilar og stjórnvöld þurfa sameiginlega að vinna úr því að þegar verkefnastaðan dregst saman þá má ekki undir nokkrum kringumstæðum hugsa til þess að byggingamarkaðurinn fari á viðlíka stað og hann fór eftir hrun þar sem hann fór nánast í algjört frost. Hlutdeildarlánin eru því á miklu betri stað en þau voru. Það sem við erum líka með til skoðunar er hvort við getum eflt þau til að þau nái til breiðari hóps fólks, breiðari tekjuhópa o.s.frv., en þær breytingar liggja ekki alveg fyrir og ekki kostnaðarmat á þeim heldur.“