Alþingi:
Guðlaugur Þór Þórðarson hefur sent fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra um veggjöld innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Spurningarnar eru þessar:
- Af hvaða framkvæmdum innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins verða innheimt veggjöld af almenningi og hverjum ekki, ef einhverjum, miðað við áætlanir Betri samgangna um 143 milljarða kr. tekjur af veggjöldum, flýti- og umferðargjöldum?
- Hvað er gert ráð fyrir að innheimta í gjöld fyrir hverja ekna ferð?
- Er mismunandi gjald eftir mismunandi verkefnum í sáttmálanum? Mun þannig ferð í gegnum Miklubrautargöng kosta meira eða minna en t.d. ferð um Sæbrautarstokk?
- Er í forsendum sáttmálans gert ráð fyrir að veggjöld innan höfuðborgarsvæðisins verði alls staðar þau sömu eða er gert ráð fyrir mismunandi gjaldtöku eftir hverfum eða bæjarhlutum?
- Hvenær hyggst ráðherra leggja til að gjaldtakan verði rædd á Alþingi?
- Hyggst ráðherra leggja til að Alþingi samþykki gjaldtökuna? Ef svo er ekki, hverjir eiga að taka ákvörðun um hana?
Þú gætir haft áhuga á þessum