Alþingi:
Diljá Mist Einarsdóttir um bókun 35:
„Mig langar að byrja á því að biðla til almennings að hann sjái í gegnum þessa reyksprengju ríkisstjórnarinnar og hæstvirts utanríkisráðherra sem þetta mál er. Ríkisstjórnarsamstarfið logar stafnanna á milli vegna hvers hneykslismálsins á fætur öðru en auðvitað aðallega vegna kolsvartrar stöðu í efnahagsmálum landsins.
Auðvitað vill ríkisstjórnin frekar að athygli þingheims og almennings beinist að hártogunum um flókin lagatæknileg úrlausnarefni í tengslum við EES-samninginn, úrlausnarefni sem okkar færustu lögfræðingar ná ekki einu sinni saman um, miklu frekar en að ræða hvað þau standa sig herfilega við að stýra þessu landi, herfilega við að uppfylla sín helstu kosningaloforð um stöðugleika í efnahagsmálum.“
Í lok ræðunnar sagði Diljá Mist: „Ekki falla fyrir reyksprengjum ríkisstjórnarinnar. Efnahagsmálin eru algjört forgangsmál. Við getum ekki sætt okkur við aðgerðaleysi eða rangar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar í þeim málum í tvö ár í viðbót.“
Hér er tengill á alla ræðu Diljár Mistar: