- Advertisement -

Tryggingastofnun og hin„steindauðu“ bréf

Alþingi / störf þingsins:

Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður utan flokka:

„Þegar fólk er á versta stað í lífi sínu vegna veikinda eða ef það t.d. missir maka þarf að sýna fólki samúð, tillitssemi og virðingu. Ég er að tala um eldra fólk sem er jafnvel með fjölfötlun og þroskahömlun. Því miður hefur eldra fólk haft samband við mig sem er í þeirri aðstöðu að hafa misst maka og er að fá rukkun frá Tryggingastofnun ríkisins og jafnvel Skattinum; kaldranaleg bréf inn um lúguna og viðkomandi er bent á að hann geti farið inn á island.is og leitað sér upplýsinga.

Það er ekki
eðlilegt að fólk
þurfi að leita úti í bæ.

Við erum líka að tala um fólk sem er jafnvel lögblint, með fjölfötlun, jafnvel lyfjað og með elliglöp, og við verðum að sýna þessu fólki tillitssemi og sjá til þess að það sé komið fram við það þannig að það viti hvert það getur leitað. Það á ekki að vera mjög flókið fyrir Tryggingastofnun ríkisins að hafa mann sem sendir bara vinalegt bréf á viðkomandi og bendir honum á að hann geti fengið tíma hjá viðkomandi og honum verði stýrt og leiðbeint um hvernig hann eigi að ganga frá sínum hlutum.

Það er ekki eðlilegt að fólk þurfi að leita úti í bæ og viti ekkert hvað það á að gera vegna þess að það er kannski einstætt. Makinn er farinn og sá sem fær kröfuna hefur ekki séð um fjármálin og hann hefur ekki hugmynd um hvað hann á að gera og veit ekkert hvert hann á að leita.

Tryggingastofnun getur fundið viðkomandi einstakling og sent honum bréf. En ég spyr mig: Er það gervigreindin sem sendir bréfin? Þessi bréf eru steindauð, þau eru bara innheimta. Sendum bréf sem fólkið skilur og gefum því tíma. Segjum við það: Þú kemur hingað til Tryggingastofnunar og hittir fulltrúa og við förum í gegnum málið og sýnum þér hvað er hægt að gera.

Gleymum ekki að ef það eru sérstakar aðstæður til staðar er hægt að fella niður viðkomandi kröfu. Þetta er mjög einfalt og ég held að þetta sé einmitt það sem við þurfum að gera og kostar ekki neitt.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: