- Advertisement -

Jón Gnarr „seldi“ sig

Stjórnmál:

Mikil vonbrigði er að sjá að Jón Gnarr hafi skrifað undir samning um hvernig hann muni greiða atkvæði á Alþingi, kjörtímabilið á enda. Það er ekki það sama og lofa að fylgja eigin sannfæringu. Alls, alls ekki.

Ég hef stutt Jón Gnarr – en hann hefur gert mér, og eflasut fleirum, erfitt með það héðan í frá.

Þegar Jón sagðist virða stjórnarskrána var hann búinn að skrifa undir samning við Pawel Bartoszek um allt annað. Um hvernig muni greiða atkvæði í nánustu framtíð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þeir gerðu með sér díl, sem er fullkomin vanvirðing við Alþingi og kjósendur. Jón mun fá peninga frá Viðreisn gegn því að hann bindi hendur sínar allt til loka kjörtímabilsins. Ég hef fylgst lengi með stjórnmálum en man ekki eftir neinu ámóta þessu.

Það munu verða eftirmálar af þessum gjörningi Pawels Bartosxek og Jóns Gnarr.

Vísir hefur gert þessu betri skil en aðrir fjölmiðlar. Því er hægt að lesa frétt Vísis hér.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: