- Advertisement -

Samstillt átak

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra:

„Í morgun fór ég fyrir ríkisstjórn með aðgerðir til að hemja verðhækkanir og verja kjarasamninga. Eftir þríhliða samtal á síðustu mánuðum milli ríkisstjórnar, Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins – sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur einnig tekið þátt í upp á síðkastið.

Þetta er gert með afmörkuðum aðgerðum og án þess að ógna hallalausum fjárlögum. Því að besta leiðin til að vinna gegn verðbólgu á þenslutímum er að hætta að reka ríkið á yfirdrætti.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við vitum öll hvaða áhrif hækkandi olíuverð hefur haft á verðbólguna. Sem er nú tæp 6% og hefur verið 5% að meðaltali frá aldamótum. En við erum að laga ríkisfjármálin og kæla kerfið. Það hefur tekist að hemja undirliggjandi verðbólgu. Og með samstilltu átaki getum við núna snúið við blaðinu í baráttunni við verðbólguna – ef allir axla sína ábyrgð. Ég hef fulla trú á að svo verði.

Hjá Samtökum atvinnulífsins í gær lagði ég áherslu á stóru myndina og hvernig við sækjum fram fyrir Ísland. Þó að umræðan bendi stundum til annars – þá er ljóst að atvinnulífið sjálft lætur verkin tala og hefur trú á framtíðinni sem við sköpum hérna saman.

Þetta sést meðal annars á því að fjárfesting atvinnuvega er nú sú mesta á Ísland í 50 ár – fyrir utan árin þrjú fyrir efnahagshrunið þegar skuldasöfnun var miklu meiri. Við fjárfestum tvöfalt meira núna sem hlutfall af landsframleiðslu en á árunum eftir hrun. Og atvinnuvegafjárfesting er að aukast um rúm 6% á þessu ári – sem styður við áframhaldandi uppbyggingu.

Ég sé fjölda tækifæra til samvinnu og frekari sóknar með íslensku atvinnulífi á næstu árum.“

Hér er unnt að lesa ræðu Kristrúnar frá fundi SA í gær.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: