STJÓRNMÁL:
Arnar Þór Jónsson, lögmaður og fyrrum forsetaframbjóðandi, skrifaði:
„Alþingi hefur verið send formleg áskorun um rannsókn á mögulegri ráðherraábyrgð og brotum gegn sjálfsforræði íslenska ríkisins, nánar tiltekið að Alþingi rannsaki hvort utanríkisráðherra hafi brotið gegn lögum um ráðherraábyrgð og ákvæðum X. kafla almennra hegningarlaga. Metið verði hvort tilefni sé til skipunar rannsóknarnefndar og mögulegrar málshöfðunar. Elstu atvikin eru frá 2025 og frestur til málshöfðunar er tilgreindur. Erindið er m.a. stutt með vísan til eftirlitshlutverks Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu.“
Áskorunina í heild má finna lesa hér.
Þú gætir haft áhuga á þessum