Mogginn:

„Kílómetragjaldið verður stærsti einstaki tekjuliðurinn af ökutækjum, eldsneyti og akstri. Tekjur af því eru áætlaðar 37,1 milljarður króna í ár og 43,4 milljarðar á næsta ári. Í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að kílómetragjaldið hækki um 15,9% og verður það eitt og sér rúmlega helmingur gjaldheimtunnar árið 2027,“ segir meðal annars i Moggafrétt þar sem rætt er við Ingólf Bender hagfræðing hjá Samtökum iðnaðarins.
„Ingólfur segir ástand vegakerfisins kalla á aukin framlög en ekki minni. „Ástand vegakerfisins er mjög slæmt og við þurfum að lækka innviðaskuldina, ekki bæta við hana. Það þarf að beina meira fjármagni til uppbyggingar og viðhalds vegakerfisins.“
Samkvæmt fjármálaáætlun 2027-2031 eru um 40% þjóðvega í slæmu eða mjög slæmu ástandi og 30% vegakerfisins með slakt burðarlag. Uppsöfnuð viðhaldsskuld vegakerfisins hefur verið metin á 265 til 290 milljarða króna.
Ingólfur segir fyrirhugaða þróun fela í sér frekari skuldsetningu í vegakerfinu. „Sú leið sem farin er í frumvarpinu er í raun leið aukinnar skuldsetningar. Þegar viðhaldi og nauðsynlegum nýfjárfestingum í vegakerfinu er ekki sinnt nægjanlega hverfur kostnaðurinn ekki. Honum er einfaldlega velt yfir á framtíðarkynslóðir sem þurfa að greiða reikninginn af innviðaskuld síðustu ára.““