- Advertisement -

Samtökin ’78 biðja fólk um að beita fólk ekki ofbeldi

„Vegna fréttaflutnings um hótanir í garð Snorra Mássonar og fjölskyldu hans vill stjórn Samtakanna ’78 koma eftirfarandi á framfæri.

Samtökin ’78 fordæma afdráttarlaust allar hótanir um ofbeldi og dreifingu persónuupplýsinga sem geta leitt til hættu eða árása á einstaklinga.

Slíkt athæfi á sér engan rétt í lýðræðissamfélagi og gengur þvert gegn gildum mannréttinda, jafnréttis og friðsamlegrar umræðu sem við stöndum fyrir.

Við vitum að umræða um trans fólk og réttindi hinsegin samfélagsins getur verið átakamikil. Það réttlætir aldrei að fólk sé sett í hættu eða beitt ofbeldi. Við höfum trú á því að breytingar náist með samstöðu, fræðslu og friðsamlegri baráttu fyrir réttlæti.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við hvetjum öll þau sem vilja standa með hinsegin fólki til að taka þátt í þeirri baráttu með friðsömum hætti, án haturs og án ofbeldis. Það er með kærleika, samstöðu og seiglu sem við vinnum okkar stærstu sigra.

Þeim sem eiga um sárt að binda er bent á ráðgjafaþjónustu Samtakanna. Einnig minnum við á næstu gagnræðunámskeið sem fram fara þriðjudaginn 16. september og mánudaginn 6. október.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Samtakanna ’78, www.samtokin78.is.“

– Stjórn Samtakanna ’78


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: