- Advertisement -

Á dómsmálaráðherra Viðreisnar að flokka átakasvæðin í heiminum

Stefán Pálsson skrifar:

„Sú ákvörðun að meina fólki búsetu á Íslandi á þeirri forsendu að það hafi hafi ekki barist í her heimalands síns er stærri stefnubreyting en svo að ráðherra eigi að geta gert það með einfaldri tilkynningu. Hér er um risastórt siðferðislegt álitamál að ræða. Og svo er það fordæmisgildið. Myndum við líka senda ísraelsk ungmenni til síns heima því þau ættu að þjóna í her síns lands? Ein af helstu ástæðum þess að fólk flýr landa á milli er einmitt til að losna við að taka þátt í styrjöldum – á dómsmálaráðherra Viðreisnar að sitja á skrifstofu og flokka átakasvæðin í heiminum og ákveða hvaða stríð séu nógu göfug til að við getum krafist þess að fólk berjist, drepi og deyi?“

Sjá nánar hér.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: