Fæðingum íslenskra kvenna fækkar. Sem er ekki gott. Við verðum að viðhalda okkur. Margar þjóðir eiga við sama vanda að stríða. Hvað er til bragðs að taka? Veit það ekki.
Þó veit ég að það er merkilegt að sama dag og fréttir af þessu bárust til okkar var ungum hjónum með þrjú ung börn vísað frá Íslandi og flogið með fimm manna fjölskyldu langt í burtu. Þar sem ekki er vitað til að þau geti verið eða komið sér fyrir. Lifað af.
Þar misstum við af ungum foreldrum með þrjú ung börn. Það sem okkur vantar hvað mest. Til hvers? Held að ekki nokkur manneskja geti svarað þessari einföldu spurningu; til hvers?
Vissulega má ekki setja okkar hagsmuni í fyrsta sæti. Hér á þessi unga fimm manna fjölskylda að vera. Eigum að láta mannúðina ráða. Núverandi ríkisstjórn er ekki hótinu skárri en þær sem á undan fóru. Hjarta úr köldu stáli.
-sme