
Mogginn leitaði enn og aftur til Ragnars Árnasonar, fyrrverandi prófessor, með hvað hann sjái fyrir sér eftir samþykkt laga veiðigjöld. Ragnar svaraði ákveðið: „Þetta er efnahagslegt glapræði.“
Ragnar sagði einnig að nú muni íslenska þjoðin verða fátækari og fátækari. Ragnar er þess fullviss að skatttekjur ríkissjóðs mjuni rýrna innan fárra ára. Blaðamaður Moggans skrifar: „Ragnar telur að þessi mikla hækkun veiðigjalda brengli samkeppnisstöðu sjávarútvegsins bæði innanlands og á alþjóðavísu.“
„Það er sjaldgæft að veiðigjöld séu lögð á sjávarútveg annars staðar í heiminum,“ sagði Ragnar og benti á að íslenskur sjávarútvegur verði verr settur í samanburði við erlenda aðila.
Af þessu má ætla að hér ríki dauði og djöfull á komandi árum þó útgerðin sé gert að gera upp með réttu verði og borga ögn hærri veiðigjöld. Mogginn og prófessorinn fyrrverandi verða að slappa aðeins af. Svona ýkjur er ekki til neins.