- Advertisement -

Við krefjum stjórnvöld um aðgerðir strax

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar skrifaði eftirfarandi texta:

Stjórn Elfingar ályktaði á fundi sínum í gær um djúpa kreppu húsnæðismála og dökkar horfur framundan. Við krefjum stjórnvöld um aðgerðir strax. Frá sjónarhóli Eflingarfélaga og annars verkafólks eru eftirfarandi aðgerðir brýnastar:

Takmarka þarf verulega heimildir til að nýta íbúðir til skammtímaleigu (AirBnB o. fl.) á höfuðborgarsvæðinu og eftir atvikum í öðru þéttbýli. Það eru þær aðgerðir sem virka hraðast til að slá á misvægi framboðs og eftirspurnar sem orsakar óeðlilegar verðhækkanir.

Koma á alvöru hömlum á verðhækkanir leigu (þ.e. leigubremsu, bæði í langtímaleigu og skemmri tíma leigu). Ísland þarf að nálgast grannríkin í þessum efnum svo um munar. Leigubremsa er líka mikilvægt verkfæri í baráttunni við verðbólguna.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vilji til aðgerða er allt sem þarf.

Stýra þarf betur nýtingu íbúðarhúsnæðis til búsetu og þrengja að nýtingu þess sem brask- og fjárfestingarleiðar fyrir efnafólk. HMS bendir á ýmsar leiðir til þess.

Efla þarf húsnæðisstuðning hins opinbera, bæði til að auka enn frekar framboð íbúða til lægri tekjuhópa á vegum óhagnaðardrifinna aðila og létta byrðar heimila. Leigubætur hafa ekki verið verðbættar á þessu ári og rýrna því með verðbólgunni. Það þarf að laga. Til að leigubætur skili nægum árangri þarf leigubremsa einnig að vera til staðar.

Umtalsverð takmörkun á skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis í þéttbýli til ferðamanna og innleiðing alvöru leigubremsu kosta stjórnvöld ekkert. Vilji til aðgerða er allt sem þarf.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: