- Advertisement -

Leyst aldrei á þingmannsferil Jóns Gnarr

Stjórnmál:

Ákvörðun Jóns Gnarr að segja sig frá þingflokki Viðreisnar leggst mis vel í fólk. Hér á eftir fara tvö dæmi:

Guðmundur Andri Thorsson:

„Þingstörf eru hópíþrótt. Það er alltaf hættuspil fyrir flokka að freistast til að fá til liðs við sig einstaklinga sem hafa aflað sér vinsælda á öðrum vettvangi en í stjórnmálum. Soldið eins og fá afburða snjallan stangastökkvara í fótboltalið. Hætt við að hann bara hangi frammi í leikjum og reyni að finna leiðir til að stökkva yfir markið. Og verði frústreraður þegar það er ekki í boði. Eða eitthvað. Treysti mér ekki lengra með þessa líkingu; en Jón Gnarr er góður þingmaður, sýnist mér, sem nenni þó lítið að fylgjast með pólitíkinni, þó augljóslega sé hann ekki hópíþróttamaður.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Páll Baldvinsson:

„Abott og Castello, Martin og Lewis. tvíhöfðadrengirnir byggðu allir á sömu tækni: trúðurinn og sá venjulegi, sá sem hlustaði á spaugið, svaraði með einsatkvæðisorðum og spurði. Það var uppleggið sem hratt JG á stóra svið. Hann er núna sóló, einstakur sem hann er. Mér leyst aldrei á þingmannsferil hans en það hefur sýnilega enginn verið í þingflokknum sem hafði lag á honum, því fór sem fór.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: