Fjölmiðlar:
Stefán Jón Hafstein, fjölmiðlamaður og formaður stjórnar Ríkisútvarpsins, skrifaði á Facebook:
Íslensk blaðamennska skiptir um gír. Þrumuskot úr mjög svo óvæntri átt algjörlega að óvörum. Eftir að hafa horft áhugalaus á ha-ha tjitt tjatt spjall „fréttir“ aðalmiðlanna um „uppákomu“ í sundlaug “eftir vinnutíma þingmanna” kemur þetta frá, af öllum, ritstjóra Smartlands sem hringdi í sérfræðing:
,,Ég held að of margir þingmenn glími við ómeðhöndlaðan drykkjuvanda og ættu ekki að vera undir áhrifum áfengis, sem er sterkt deyfilyf, að brjóta lög og reglur. Það er hvorki spennandi né til eftirbreytni að vera allsber með öðrum einstaklingum, vímaðir í sundlaugum eða heitum pottum á næturnar. Þingmenn eiga að vera öðrum til fyrirmyndar,“ sagði hún grjóthörð.
Ef barnið mitt myndi brjótast inn í sundlaug um miðja nótt þá þætti mér það frekar pínlegt. Ég myndi upplifa það þannig að barnið væri komið inn á svæði sem það ætti ekki að vera inni á. Það þyrfti að hafa afkvæmið undir eftirliti. Ég veit ekki hvernig stemningin er heima hjá þessum fimm þingmönnum núna.”
Sérstakur leiðari á Smartlandssíðunni um málið? Nú gengur eitthvað á einhvers staðar.
