- Advertisement -

Samkeppniseftirlitið er versta stjórnvald landsins

Hinir fáu eigendur fákeppnisfélaganna hirða árlegan gulltryggðan arð sem skattlagður er 20%. Nær væri að setja ofurskatt á sjálftökugróðann sem hluthafarnir fá í arð.

ragnar Önundarson skrifaði:

Umræðan: Ragnar Önundarson skrifaði:

„Hagar keyptu Olís. Skeljungur og 10-11 sameinuðust. N1 tók Krónuna / Nóatún yfir. Viðbrögð fákeppnisfélaga við alvöru samkeppni (Costco) var aukin fàkeppni. Samkeppniseftirlitið samþykkti með skilyrðum sem fljótt gleymast.

Samkeppnisyfirvöld klóra sér í hausnum, aðgerðalaus, úrræðalaus, máttlaus. Þau eru „fangar“ fyrri ákvarðana, sem skapa fordæmi: Þau hafa starfað í 25 ár undir tveimur nöfnum, kennitölum og forstjórum. Samkeppnisstofnun og Samkeppniseftirlit. Samrunar og yfirtökur hafa næstum alltaf hlotið samþykki. Afleiðingin er sú að fákeppni rîkir á öllum helstu sviðum viðskiptalífsins. Handleiðsla samkeppnisyfirvalda hefur ekki verið í þágu neytenda. Sífellt er verið að samþykkja aukna fákeppni (samruna), en afleiðingin er samráð eða lærð hegðun sem er neytendum skaðleg.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hinir fáu eigendur fákeppnisfélaganna hirða árlegan gulltryggðan arð sem skattlagður er 20%. Nær væri að setja ofurskatt á sjálftökugróðann sem hluthafarnir fá í arð. Eitthvað þarf að gera svo fákeppnisreksur verði óhagkvæmur fyrir hluthafana.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: