Gauti B. Eggertsson á þessi skrif tileinkuð Stefáni Einari Stefánssyni:
„Ég átti í orðaskiptum við þennan andans mann, sem var í miklum ham og sakaði mig um alls kyns ósannsögli og slíkt, en mér skilst að hann sé mikill spaði á Morgunblaðinu hvar hann rekur heimsfrægt hlaðvarp. Almennt held ég að hann sé misskilinn snillingur og orti ég því um hann þetta kvæði:
Fræðir andann, hvergi hann
hræðir væna lýði.
Græðir landann, aldrei ann
örgu hræðslu níði.
Vandinn er sá að hann er misskilinn. Og menn skilja ekki að þetta er hin rétta vísa, en Morgunblaðið virðist stundum vera á hvolfi og kann þá fólk að slysast til að lesa kvæðið afturábak, sem er auðvitað afskaplega villandi:
Níði hræðslu örgu ann,
aldrei landann græðir,
lýði væna hræðir hann,
hvergi andann fræðir.
Því vil ég beina því til lesenda Morgunblaðsins að Stefán sé rétt metinn og að fólk lesi hann ekki öfugt. Og þótt eldur logi þarna í bakgrunni væri það hrein ósannsögli að halda því fram að brennisteinslyktin boði komu hans.“