- Advertisement -

Vín og dóp – 20 til 30 dauðsföll á ári

Birgir Dýrfjörð skrifaði:

Á sínum tíma talaði ég á Alþingi gegn áfengi .  Ég upplýsti að samkvæmt ALÞJÓÐA rannsóknum væri neysla á alkoholi  ávísun á aukið heilsufarslegt, efnahagslegt og félagslegt tjón.    

Í skýrslu tryggingastofnunar danska ríkisins fyrir 1980 kemur fram að 52% þeirra karla sem eru öryrkjar í Kaupmannahöfn eru það eingöngu vegna drykkjuskapar.

Í meira en helmingi sjúkrarúma í Danmörku er fólk með áfengistengda sjúkdóma.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við rannsókn
danskra geðlækna

Ofneysla bjórs í Danmörku er algeng meðal barna.  Við rannsókn danskra geðlækna kom í ljós, að  tíundi hver unglingur í þeim aldursflokki verður fyrir skaðlegum áhrifum á þroska heilans vegna bjórneyslu, – eru íslenskir unglingar öðruvísi? 

Skorpulifur. Árið 1985 birtu franskir vísindamenn grein um rannsókn sína á áfengisneyslu og skorpulifur.

Niðurstaða þeirra var, að bjórdrykkjufólk  er í mestri hættu að fá þann banvæna sjúkdóm.

Ofdrykkjufólk. Í Belgíu eru 95% allra drykkjusjúklinga bjórdrykkjufólk, þ.e. menn sem drekka helst ekki aðra áfenga drykki, Í Bretlandi var hlutfallið 66%.

 Staðreyndin er, að sídrykkjan,  litli daglegi skammturinn er hættulegastur. Þess vegna eru niðurstöður Belgíumanna þær, að 95% ofdrykkjufólks er bjórdrykkjufólk.

Sala á millisterkum bjór var leyfð í Svíþjóð 1965.  Reynslan varð sú að unglinga- og barnadrykkja jókst gífurlega, Af illri reynslu bannaði þingið framleiðslu og sölu milliöls. 

Árið 1968 leyfðu Finnar sölu á áfengu öli. Á sex árum jókst heildar áfengisneysla þeirra um 146%

Ölvíman greiðir hættulegri efnum leið. Í Noregi kom fram, að fjórði hver táningur sem neytir áfengis leiðist í neyslu á öðrum vímuefnum.  Í öllum þessum löndum var það svo,  að í ölvímunni  voru hörðu efnin prófuð í fyrsta sinn.  Í gáleysi ölvímunnar byrja forvitin ungmenni að fikta við önnur vímuefni  t.d. amfetamín, ópíóíða, fentanyl,  oxýkontín og fleiri lífsháskaleg efni sem auðvelt er að fela í vösum. Á skömmum tíma festa þau fólk í neyslu. 

Hafa þau glatað
meðlíðan sinni…

Samkvæmt skýrslu Landlæknis eru ÁRLEGA  20 -30 dauðsföll á Íslandi sem rekja má til neyslu vímuefna.  Það jafngildir rúmlega tveimur dauðsföllum á mánuði síðast liðin 10 ár.

ÞAÐ TÝNDIST KONA Á JÖKLI.   Björgunarsveitir voru sendar ogfjölmiðlar fluttu fréttir og þjóðin fylgdist með.  Ferðin fór vel og allir fögnuðu. Það tókst að bjarga mannslífi.

Spurt er.  Hvar er forustufólk þeirra tuga samtaka, sem geta náð þjóðarvakningu og myndað  björgunarsveitir gegn þeirri þjáningu og lífsháska sem vímuefnin valda.  Hvar er forusta íþrótta og  ungmennafélaga, –  forusta uppeldisstétta. – Hvar eru kennarar og skólastjórar? – Hvar er forustufólk stjórnmálaflokka. – og launþegasamtaka? 

Hafa þau glatað meðlíðan sinni og mennsku sem öllum er áskapað?  Þurfum við að dreifa fórnarlömbum dauðans um jökla landsins til að björguarsveitir komi þeim til hjálpar? 

ES; Upplýsingar um 20-30 dauðsföll á ári eru nýjar.  Birtar á vef Landlæknis.

Aðrar upplýsingar sem vísað til voru fengnar í Áfengisvarnaráði og eru því ekki nýjar.

Það rýrir þó ekki sannleika þeirra því skaðleg áhrif vínanda á mannsheilann eru óbreytt. 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: