- Advertisement -

Leggjum bara fótboltann niður

Reykjavík:

Jóhann Þorvarðarson skrifaði:

Það er greinilega kominn nýr mælikvarði á verðmæti í Reykjavík. Ef eitthvað skilar ekki beinum tekjum inn á bankareikning borgarinnar, þá er það bara kostnaður. Miðað við þá hugsun ætti næsta skref að vera augljóst. Leggjum bara niður meistaraflokka í knattspyrnu.

Í bestu deild karla, bestu deild kvenna og Lengjudeildum beggja kynja eru tólf lið frá Reykjavík. Byrjunarlið þeirra telja samtals 132 leikmenn. En það eru nánast jafn margir og meirihlutinn í Reykjavík ákvað nýverið að senda á atvinnuleysisbætur með hástemmdum yfirlýsingum um ábyrg fjármál.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það ætti að líta vel
út í excel-skjali
guðsgeldinganna í
meirihluta borgarinnar.

Reyndar má halda því fram að fótboltinn sé verri. Starfsfólkið sem sagt var upp mætti að minnsta kosti í vinnuna. Fótboltamennirnir eru bara að hlaupa um grasvelli, sparka í bolta og framleiða ekkert sem hægt er að bóka sem rekstrartekjur hjá borginni.

Þegar litið er á málið með excel-skjalið í annarri hendi og alla mannlega skynsemi í ruslafötunni í hinni, verður niðurstaðan einföld. Íþróttir eru kostnaður. Menning er kostnaður. Tónlistarskólar eru kostnaður. Leikvellir eru kostnaður. Bókasöfn eru kostnaður. Börn eru eiginlega líka kostnaður ef út í það er farið.

Á síðasta ári fóru um 24 milljarðar í íþrótta- og menningarmál. Hvílíkt sukk! Með svona hugsun mætti auðvitað loka sundlaugum, selja sparkvellina og breyta félagsheimilum í skrifstofur fyrir nefndir sem funda um hvernig megi spara enn meira.

Og af hverju að stoppa þar?

Það kostar líka að gefa út frístundakort. Það kostar að byggja æfingaaðstöðu félaga sem ala upp bæði landsliðsfólk og samfélagsþegna. Ekkert af þessu skilar sér beint í excel-skjalið sem Hildur borgarstjóri sýnir á fundum.

Vandamálið við þessa bókhaldslegu hugsun er að hún sér aðeins útgjaldaliðinn en aldrei ávinninginn. Hún getur reiknað verð á gervigrasi en ekki verðmæti þess að unglingur eyði kvöldinu á æfingu fremur en í eitthvað allt annð. Hún getur talið launaseðla en ekki samfélagið sem verður til í kringum félögin.

Kannski er það einmitt lærdómurinn um stefnu meirihlutans. Ef mælikvarðinn er eingöngu hvort eitthvað skili tekjum í kassann á morgun, þá er auðvitað rökrétt að leggja niður fótboltann. Rétt eins og það er rökrétt að leggja niður menninguna.

Þegar næst þarf að spara væri kannski einfaldast að loka bara öllu sem gerir borgina að samfélagi. Það ætti að líta vel út í excel-skjali guðsgeldinganna í meirihluta borgarinnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: