Landsvirkjun:
Þorbergur Þórsson skrifaði:
„Hér kemur loksins fram skýring á því af hverju sérlega farsæll forstjóri segir skyndilega upp störfum í einu mikilvægasta fyrirtæki landsins. Samkvæmt lögum um Landsvirkjun situr forstjóri alla stjórnarfundi fyrirtækisins. En hin nýja stjórn hélt þá bara sérstaka fundi sem hér eru kallaðir óformlegir fundir, hádegisverðarfundir, og bauð forstjóranum alls ekki á þá fundi.
Stjórnin hélt enga fundi en hélt þó fundi: Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar segir enga stjórnarfundi hafa verið haldna án Harðar Arnarsonar, fráfarandi forstjóra, nema þá þar sem hans mál hafi verið rædd eins og lög gera ráð fyrir.
„En ég get alveg sagt að stjórn hefur hist og borðað saman hádegisverð til þess að ræða fundarsköp og samstarf innan stjórnar sem er auðvitað ekki málefni Landsvirkjunar. Þetta eru ekki stjórnarfundir heldur er bara verið að ræða samstarf innan stjórnarinnar,“ segir Brynja í samtali við mbl.is.“
Mikið skil ég forstjórann að hafa ekki kunnað við þessi vinnubrögð, og ef ég væri ráðherra yfir orkumálum myndi ég íhuga hvort ekki þurfi að skipta um stjórn fyrirtækisins, og að minnsta kosti kalla stjórnarformanninn á fund og fá útskýringu hans á því hvernig fundur stjórnar Landsvirkjunar getur verið annað en stjórnarfundur Landsvirkjunar. Einhvern tíma hefði fréttafólki held ég þótt ástæða til að rannsaka svona mál mun betur en gert hefur verið.