- Advertisement -

Hvar er Eggert Benedikt nýkrýndur forstjóri Hafrannsóknarstofnunar?

Sjávarútvegur:

Vigfús Ásbjörnsson í Hornafirði skrifar:

Til hans hefur hvorki sést né spurst síðan hann var skipaður forstjóri einnar mikilvægustu stofnunar þjóðarinnar, Hafrannsóknarstofnunar. Stofnun sem á sjá til þess að fiskistofnar séu nýttir en ekki bara of verndaðir. Hefur nýr forstjóri eitthvað eitthvað nýtt fram að færa sem fyrrverandi forstjóri hafði ekki eða var hann skipaður til að standa vörð um misheppnaða tilraun stofnunarinnar sem staðið hefur í rúm 40 ár og hefur ekki byggt upp nokkurn einasta fiskistofn hér við land en hefur þó náð að útrýma nokkrum… Það eru nú öll fögru vísindin!

Já, nýverið skipaði Hanna Katrín Friðriksson sjávarútvegsráðherra VIN SINN Eggert Benedikt Guðmundsson í  stöðu FORSTJÓRA Hafrannsóknarstofnunar til 5 ára. Síðan hefur ekkert til Eggerts spurst  þrátt fyrir mikla og málefnalega gagnrýni á vinnubrögð og  getuleysi stofnunarinnar á öllum sviðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…er Sjávarútvegspjallið
á Samstöðinni…

Já úr öllum áttum berast gagnrýnisraddir á vinnubrögð þessar stofnunar þar sem rök fylgja máli en aldrei kemur svo mikið sem brot úr viðtali við nýja forstjórann eða hvað skoðun hann hefur á málunum. Hverskonar forstjóri er það og hvað veldur því? Hefur hann eitthvað að fela og er hann bara í feluleik á fullorðinsaldri ? Þjóðin hefur ekki efni á öðrum slíkum forstjóra.

Eina lifandi samtalið um sjávarútveg á Íslandi sem þjóðin hefur aðgang að  er Sjávarútvegspjallið á Samstöðinni sem eru vandaðir vikulegir þættir um sjávarútvegsmál sem fær til sín viðmælendur úr öllum áttum hefur tvisvar óskað eftir að fá hann í þáttinn í samtal en hvergi birtist nýi forstjórinn í samtali. Samkvæmt Grétari Mar Jónssyni  þáttastjórnanda þáttarins hefur hann reynt að fá nýja forstjórann tvisvar í þáttinn en hann neitaði að koma í þáttinn í fyrra skiptið og svaraði ekki seinni óskum.

Það er svo ekki sé meira sagt stórfurðuleg viðbrögð nýskipaðs forstjóra okkar mikilvægustu stofnunar fyrir þjóðarbúið og komandi kynslóða. Jafnvel hafa ekki ómerkari menn en alþingismaðurinn og líffræðingurinn Sigurjón Þórðarson óskað eftir að fá að vera með honum í þætti um sjávarútvegspjall  þegar hann þorir að mæta. Sigurjón er einmitt sá maður sem hefur ekki legið á skoðunum sínum á árangursleysi Hafró og hvað það árangursleysi er búið að kosta okkur sem þjóð….

Ég verð að segja að það er eitthvað stór undarlegt þegar forstjórar fara í feluleik á fullorðinsaldri, málefnið er þjóðinni svo mikilvægt að ef forstjórinn gerir sér ekki grein fyrir því þá er hann verri en enginn og þjóðin hefur bara ekki efni á því lengur.

Ég skora á Eggert Benedikt að mæta í sjávarútvegspjallið og taka samtalið við Sigurjón Þórðarson einn öflugasta þingmann landsins og þó víðar væri leitað. Það þarf að fara að spyrna hér við fæti í aðferðum og vísindum þjóðarinnar til að efla hér fiskistofna sem verða horfnir eftir ekki svo marga áratugi ef engu verður breitt.

Það er af mörgu að taka og þjóðin þarf að fá að vita hvort forstjórinn hafi eitthvað nýtt fram að færa í staðnaðri stofnunni eða hvort hann sé tekinn við til að standa vörð um stöðnunina.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: