- Advertisement -

Sameiginleg fiskveiðistefna ESB

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifar:

Árangur ESB við stjórn fiskveiða er hræðilegur rétt eins og Hafró en er mun lengra gengin. Áhrif grænageirans eru mun meiri í Evrópu á fiskveiðar og umræðuna um veiðar m.a. áherslur og óljóst tal um að endurheimta upprunalegt ástand vistkerfis hafsins með aukinni vernd.

„Því er ekki móti mælt að við inngöngu í Evrópusambandið mun Alþjóða hafrannsóknarráðið (ICES) veita ráð um úthlutun á veiðiheimildum á Íslandsmiðum sem ráðherraráð Evrópusambandsins tekur að sér að deila út.

Að stofni til eru forsendur ráðgjafar Alþjóðahafrannsóknarráðsins af nákvæmlega sama meiði og ráðgjöf Hafró þ.e. horft er einangrað á óáreiðanlega talningu á einstaka fisktegund t.d. þorski án þess að líta til líffræðilegra kennitala á borð við vaxtarhraða eða kynþroska eftir aldri. „Ráðgjöf“ upp á kg er síðan reiknuð út, út frá reglum sem eiga sér enga vistfræðilega stoð t.d. 20% af reiknuðum veiðistofni í þorski hér við land en 13% í síld.

Árangur ESB við stjórn fiskveiða er hræðilegur rétt eins og Hafró en er mun lengra gengin. Áhrif grænageirans eru mun meiri í Evrópu á fiskveiðar og umræðuna um veiðar m.a. áherslur og óljóst tal um að endurheimta upprunalegt ástand vistkerfis hafsins með aukinni vernd.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…í ESB ríkir víða algert veiðibann þrátt fyrir áralanga verndarstefnu.

Hér erum við að veiða um helminginn af því sem við gerðum áður af þorski en í ESB ríkir víða algert veiðibann þrátt fyrir áralanga verndarstefnu.

Á flestum hefðbundnum þorskmiðum sambanadsins ríkir eins og fyrr segir algert veiðibann á þorski. Það á við um Eystrasaltið. ESB leyfir aðeins að þorskur sé veiddur sem meðafli á öðrum veiðum í Kelta- og Írlandshafi. Lagt hefur verið til veiðibann á sunnanverðum Norðursjó en enn eru leyfðar afar takmarkaðar veiðar á norðlægari huta hafsvæðisins.

Hvað er að óttast við inngöngu inn í sameiginlega fiskveiðistefnu ESB?

Að óbreyttu kerfi í sjávarútvegi þá verða sjávarútvegsfyrirtækin og þar með Íslandsmið orðin að markaðsvöru í Evrópu.

Í öðru lagi má bóka að það verði snúnara að vinda ofan af þeirri „ráðgjöf“ sem hefur og mun aðeins skila aflasamdrætti nánast í öllum fisktegundum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: