Sjávarútvegur:
Magnús Guðbergsson skrifar:
30 tonn af óveiddum þorski.
Annar báturinn hefur varanlega aflahlutdeild sem skilar honum um 30 tonna aflamarki á ári. Hinn báturinn hefur aðgang að strandveiðum og getur yfir strandveiðitímabilið sótt sambærilegt magn úr sömu auðlind.
Þegar fiskurinn
kemur á markað…
Munurinn er hins vegar gríðarlegur þegar bátarnir eru verðlagðir.
Gerum ráð fyrir að núvirði hvers báts án aflahlutdeildar sé samt 50 miljónir þó svo smábátur af stærri gerðinni geti hæglega kostað 120 +miljónir í smíðum og þá aðeins 12 metra langir.
Ef strandveiðibáturinn kostar um 40 til 50 milljónir en sambærilegur bátur með varanlegar aflaheimildir er verðlagður á um 250 milljónir, þá liggja um 200 milljónir ekki í bátnum sjálfum, heldur fyrst og fremst í þeim væntingum sem markaðurinn gerir til framtíðartekna af aflahlutdeildinni.
En fiskurinn er sá sami.
Sama þorsktonnið er óveitt í sjónum áður en báturinn sækir það. Sami fiskur syndir á sömu miðum og úr sömu torfunni og fær síðan sambærilegt afurðaverð þegar honum er landað.
Þá hlýtur að mega spyrja hvað sé í raun verið að verðleggja.
Ef annar útgerðarmaður þarf að fjárfesta fyrir 250 milljónir til þess að tryggja sér bát og framtíðaraðgang að 30 tonnum en annar getur gert út sambærilegan bát fyrir 50 milljónir og sótt sambærilegt magn í strandveiðikerfinu, hvor reksturinn stendur þá betur að vígi gagnvart vöxtum, afborgunum og sveiflum í fiskverði?
Það kostar jafn mikið að fylla olíutankinn. Vélin kostar það sama í viðhaldi. Tryggingar, hafnargjöld og veiðarfæri hverfa ekki. Og þegar fiskurinn kemur á markað verður þorskurinn ekki verðmætari vegna þess að hann var veiddur á dýra aflahlutdeild.
Það er ekki
fiskurinn
sem kostar
200 milljónum meira…
Þarna liggur ein stærsta spurning íslenska fiskveiðikerfisins.
Eru strandveiðibátarnir vanmetnir vegna þess að stjórnvöld hafa ekki veitt þeim nægjanlegan langtímafyrirsjáanleika?
Eða hefur framseljanleg aflahlutdeild orðið ofmetinn og orðið óeðlilega verðmæt á markaði að verð hennar sjálft skapar gríðarlegan fjármagnskostnað og aðgangshindrun fyrir nýja útgerðarmenn?
Viðmiðið er einfalt.
30 tonn af óveiddum fiski úr sömu auðlind þjóðarinnar.
Það er ekki fiskurinn sem kostar 200 milljónum meira áður en hann er veiddur.
Það er rétturinn og fyrirsjáanleikinn sem fiskveiðikerfið hefur skapað í kringum það hver fær að sækja hann.
Það er annað kerfi sem útgerðir bjuggu til sín í milli til þess að sækja fjármagn út á fyrir sig og sínar komandi kynslóðir.