Magnús Guðbergsson skrifaði:
„Þetta er það sem hefur verið að gerast síðustu áratugina. Almenningur hefur misst tengslin við sjávarútveginn og veit í raun allt of lítið um hvernig auðlindum þjóðarinnar hefur verið ráðstafað til fáeinna fjölskyldna.
Samhliða hafa gríðarleg verðmæti safnast á sömu hendur. Kvóti, fyrirtæki, fasteignir og matvælaframleiðsla. Með auðnum fylgja völd og áhrif og samþjöppunin er orðin slík að eðlilegt er að spyrja hvort fjárhagslegt vald stórútgerðar sé orðið sterkara en pólitískt vald Alþingis þegar kemur að sjávarútvegsmálum.
Þess vegna kemur mér ekkert á óvart hvernig umræðan um sjávarútveginn hefur þróast. Stór hluti þjóðarinnar þekkir varla lengur eigin auðlind, hvernig henni er ráðstafað eða hversu stóran hlut almenningur fær í raun af verðmætunum sem hún skapar.
Strandveiðar eiga
jafn mikinn rétt á
að vera sjálfbær
atvinnugrein og stórútgerðin.
Við köllum þetta auðlind þjóðarinnar. En þjóð sem hefur takmarkaðan aðgang að eigin auðlind og lítil áhrif á ráðstöfun hennar hlýtur að spyrja hversu mikið hún á í raun.
Merkilegast af öllu er að á Íslandi, eyju lengst úti í ballarhafi, skuli ekki vera hægt að byggja upp öfluga smábátaútgerð og tryggja strandveiðum raunverulegan rétt til atvinnu.
Strandveiðar eiga jafn mikinn rétt á að vera sjálfbær atvinnugrein og stórútgerðin.
Ég tel jafnframt að áratuga sókn stórútgerðar og samþjöppun aflaheimilda verði að sæta miklu harðari gagnrýni þegar rætt er um ástand fiskistofna og fiskimiða. Það gengur ekki að verja sama kerfið áratug eftir áratug og útiloka aðrar leiðir frá auðlindinni.
Kvótakerfið var sett á til að vernda fiskistofna en ekki til að búa til ættarveldi um auðlind þjóðarinnar.
Eftir áratuga ónýta reynslu á þjóðin fullan rétt á að spyrja hvort tilraunin hafi mistekist.
Og hvenær er tilraun sem mistekst ár eftir ár einfaldlega orðin ónýt?
Mynd er fyrir athygli og sýnir þessar 4 skaðræðis tölvurúllur sem varla snerta botninn og taka minni hluta úr torfum sem eru undir bát á veiðum.
Hversu galið er af stjórnarandstöðu að standa annars vegar með ónýtri tilraun til að byggja upp fiskistofna okkar að nýju.
Og annars vegar á móti umhverfisvænni veiðarfærum sem skaða hvorki fiskistofna né lífríki sjávar.
Vonandi DEILIR þú þessu ef þér er ekki sama um komandi kynslóðir. Þið eigið skilið að skylja hvernig farið er með eigur ykkar sem er mataröryggi og auðlind þjóðarinnar eða fiskistofnar okkar landsmanna.“