Umræðan:
Magnús Guðbergsson strandveiðisjómaður:
„11.000 greinar og allt uppí 40-50.000 manns að skoða og deila, þá má reikna með meiri umræðu um málefnið milli aðila, og ég er ekki nærri hættur. Þjóðin er að fá betri skilning á því hvernig fiskveiðistjórnunarkerfið er að vinna einungis fyrir fáar fjölskyldur í landinu og arður af þeim rennur að mestu leyti til þessara fjölskyldna.
Ég skil samt vel að stórútgerð þarf fyrirsjáanleika en það hafa strandveiðar kallað eftir að fá í mörg ár.
Fiskgengd er
ekki sjálfgefin.
Hvernig á fyrirsjáanleiki að vera fyrir atvinnugreinina í heild en ekki að skilja eftir hluta hennar í óvissu ár eftir ár, eins og gert er við strandveiðar.
Hvað með það þó strandveiðar skili 17-25.000 tonnum á góðu ári ef heildarveiðar eru innan sjálfbærra marka. Það þýðir meiri útflutningsverðmæti, meiri vinnu og minna atvinnuleysi, meiri þjónustu og meiri umsvif vítt og breitt um landið. Er það slæmt.
48 dögum á ekki að fækka í 40 sem einhverri málamiðlun. Fiskgengd er ekki sjálfgefin. Sá tími getur komið að aflinn næst ekki þrátt fyrir 48 daga. Þess vegna eigum við að hafa þessa átta daga til vara þegar veður eða fiskgengd bregst.
Opnum 1. mars og höfum tímabilið til loka september. Ef vel fiskast skapast meiri verðmæti. Ef illa fiskast minnkar aflinn af sjálfu sér. Strandveiðarnar mætti jafnframt nýta markvisst til rannsókna á fiskgengd og útbreiðslu.
Hættum að leita að ástæðum til að stöðva og skerða strandveiðar. Reynum frekar að finna ástæður og leiðir til að auka þær. Fiskurinn kemur að landi, er vigtaður og skráður og skapar atvinnu og verðmæti um allt land.
Veiða, sem hvorki skaða fiskistofna okkar né lífríki sjávar og taka aðeins brotabrot úr fiskitorfum sem lenda undir bátnum. Enda aðeins um 4 króka að ræða á hverju færi af fjórum leyfilegum.
48 dagar eiga að standa. Enga 40 daga málamiðlun. Opnum 1. mars og tryggjum veiðar til loka september. Og enga svæðaskiptingu.
Hættum að leita leiða til að halda aftur af strandveiðum og finnum þess í stað leiðir til að efla þær og láta auðlind þjóðarinnar vinna fyrir þjóðina.“