- Advertisement -

Íslenskar útgerðir koma að útgerð á annan tug togara í nokkrum ESB löndum

Úlfar Hauksson skrifaði:

Það eru aðrar hvatir þar að baki. Hvatir og hagsmunir sem að þeirra mati toppa augljósa kosti við fulla aðild á sviði markaðs- og sölumála á þessum lang mikilvægasta og best borgandi markaði Íslendinga fyrir sjávarafurðir.

„Það er auðvitað gott að íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum vegni vel og hafi gott svigrúm til útrásar í skjóli EES. Fjárfestingar íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í Evrópu eru töluverðar og sem dæmi þá koma Íslendingar að útgerð á annan tug togara í nokkrum ESB löndum.

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru virkir þátttakendur í evrópskum sjávarútvegi allt frá veiðum, vinnslu og sölu- og markaðsmálum. Fullyrða má að andstaða eigenda og stjórnenda íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja við ESB aðild byggir ekki á ótta um að verða undir í samkeppni á sjávarútvegssviðinu.

Það eru aðrar hvatir þar að baki. Hvatir og hagsmunir sem að þeirra mati toppa augljósa kosti við fulla aðild á sviði markaðs- og sölumála á þessum lang mikilvægasta og best borgandi markaði Íslendinga fyrir sjávarafurðir. Markað sem mun um ókomna tíð verða okkar „heimamarkaður“ og lang mikilvægastur sem slíkur. Önnur markaðssvæði eru ágæt viðbót en munu aldrei fylla skarð Evrópu og þá aðalega ESB landa.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: