- Advertisement -

Vinnslustöðin fjárfestir frekar í Portúgal

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifar:

Í framhaldinu ritaði framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar grein undir fyrirsögninni Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn. Í greininni játaði hann að hafa lokað fiskvinnslu í Vestmanneyjum og að hafa fjárfest á svipuðum tíma í fiskvinnslu í Portúgal.

„Fyrir nokkru skrifaði ég grein og benti á þá staðreynd að ef Ísland færi með óbreytta sjávarútvegsstefnu inn í Evrópusambandið þá gætu auðhringir á borð við Unilever keypt upp íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og hæglega flutt fiskinn út óunninn í vinnslur erlendis.

Í framhaldinu benti ég að að það væru þegar brögð að því íslensk sjávarútvegfyrirtæki væru að loka fiskvinnslum á Íslandi á sama tíma og þau væru að efla fiskvinnslu erlendis og nefndi ég þá til sögunnar Vinnslustöðina í Eyjum.

…með því að gefa innlendum vinnslum kost á að bjóða í afla…

Í framhaldinu ritaði framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar grein undir fyrirsögninni Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn. Í greininni játaði hann að hafa lokað fiskvinnslu í Vestmanneyjum og að hafa fjárfest á svipuðum tíma í fiskvinnslu í Portúgal, en segir að fjárfestingin í vinnslunni í Portúgal hafi engu að síður bætt hag vinnslunnar í Eyjum.

Um leið og ég óska Vinnslustöðinni til hamingju með enn frekari fjárfestingar í Portúgal, þá vænti ég þess að forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar í Eyjum taki undir með mér hvað það varðar að rétt sé að draga skipulega úr því að hráefni úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar sé flutt óunnið í gámum úr landi. Í stað þess ætti að efla skipulega innlennda virðisaukandi fiskvinnslu m.a. með því að gefa innlendum vinnslum kost á að bjóða í afla og honum sé pakkað með viðunandi hætti, áður en honum er skóflað úr landi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: