- Advertisement -

Segir Hval undirbúa margra milljarða skaðabótakröfu vegna hvalabannsins

„Það verður fróðlegt að sjá hvort matvælaráðherra ætli að halda áfram að ástunda ógeðfelld stjórnsýsluvinnubrögð sér að gera…“

Vilhjálmur Birgisson.

Vilhjálmur Birgisson skrifaði:

„Ég verð að lýsa yfir ánægju með að Hvalur hafi boðið starfsmönnum vinnu í sumar en að sjálfsögðu er Hvalur að tryggja að fyrirtækið hafi mannskap þegar svokallaða „tímabundna“ hvalveiðibann rennur út sem er 1. september.

Enda blasir við að Hvalur mun fara á veiðar 1. september og reyna að lágmarka það gríðarlega fjárhagstjón sem matvælaráðherra hefur valdið starfsmönnum og fyrirtækinu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Rétt er að geta þess að sú vinna sem er í boði hjá Hval er einungis dagvinna ef ég skil þetta rétt og nema þær launatekjur einungis brot af þeim tekjum ef þetta ólöglega tímabundna hvalveiðibann hefði ekki komið til.

Það verður fróðlegt að sjá hvort matvælaráðherra ætli að halda áfram að ástunda ógeðfelld stjórnsýsluvinnubrögð og heimila ekki veiðarnar 1. september eins og ráðherrann hefur nú þegar gefið í skyn að hún ætli sér að gera.

Það er alveg ljóst að Hvalur er að undirbúa margra milljarða skaðabótakröfu á hendur ríkinu. Það er bara spurning hversu há hún verður, en það mun væntanlega ráðast á því hvort veiðarnar verða heimilaðar 1. september eða ekki.

Það verður hins vegar fróðlegt að sjá viðbrögð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ef matvælaráðherra heimilar ekki veiðar frá og með 1. september.

Mitt mat er að ef veiðarnar verði ekki heimilaðar þá hljóti þetta ríkisstjórnarsamstarf að springa, annað er nánast útilokað.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: