Það var þetta með smánarlega hækkun veiðigjalda. Textinn hér að neðan er fenginn af vef Ríkisútvarpsins:
„Kauptilboð Brims hf. í alla hluti Lýsis hf. hefur verið samþykkt. Kauptilboðið er 30 milljarðar íslenskra króna. Tilboðið er gert með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar kaupanda og Samkeppniseftirlitsins.
Samkvæmt kauphallartilkynningu miðast kaupverðið við að heildarverðmæti Lýsis sé 30 milljarðar króna. Frá þeirri fjárhæð dragast vaxtaberandi skuldir sem námu rúmum 5,2 milljörðum króna um mitt ár. Kaupverðið verður greitt að hálfu með reiðufé og að hálfu með hlutabréfum í Brim, miðað við gengi félagsins 23. september sem var 63 krónur á hlut.
Í tilkynningu segir að aðilar sjái veruleg samlegðaráhrif í viðskiptunum, meðal annars með því að styrkja hráefnisstöðu Lýsis og færa Brim lengra upp virðiskeðju sjávarafurða.“