- Advertisement -

Reykjavík með mestan kvóta – fyrirtæki Guðmundar eru með 80 prósent kvótans

Brim á Vopnafirði.

Reykjavík er mesta kvóta allra sveitarfélaga á landinu eða rúm 38 þúsund þorskígildistonn. Þar af er Brim með rúm 21 þúsund tonn og Útgerðarfélag Reykjavíkur með 8.600 tonn. Guðmundur Kristjánsson i Brimi er stærstur eigandi þess fyrirtækis og á að auki Útgerðarfélag Reykjavíkur.

Að auki fær Brim dágóða hlutdeild í uppsjávarveiðum sem að mestu er landað á Vopnafirði. Þar er stórt fiskiðjuver Brims.

Þrátt fyrir sterka stöðu í Reykjavík er fjarri að áhrif fyrirtækja Guðmundar og hann sjálfur hafi ámóta áhrif þar og þekkist víða í minni byggðarlögum. Að auki á Guðmundur i útgerðarfyrirækjum við Breiðafjörð. Hann er því sennilega óumdeildur kvótakóngur Íslands.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: