- Advertisement -

Sigmundur skrópari

Stjórnmál:

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er í löngu viðtali á Vísi. Hér á eftir er einn stuttur kafli af vitðalinu. Elísabet Inga Sigurðardóttir talaði við Sigmund Davíð.

Nú hefur þú verið fjarverandi allar atkvæðagreiðslur á þessu þingi. Hvers vegna mætir þú ekki?

„Allar atkvæðagreiðslur? Ég veit það ekki. Ég hef nú tekið þátt í umræðunni meira en flestir en atkvæðagreiðslur fram að þessu hafa aðallega verið atkvæðagreiðslur um hvort leyfa skuli skýrslu eða eitthvað slíkt. Þær hafa verið fáar eins og venjan er í upphafi þings. Við skulum bara telja þegar þinginu er lokið. Það er mjög lítið hægt að segja af atkvæðagreiðslum þegar þær eru bara ein eða tvær stöku sinnum um hvort biðja skuli um skýrslu. En já, ég hef verið virkur hér í umræðum í þinginu og verð það áfram eins og vanalega.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þetta voru 23 atkvæðagreiðslur og þú varst fjarverandi í þeim öllum. Ertu orðinn þreyttur á þessu eða eitthvað slíkt?

„Nei, en ég hef verið í ferðum erlendis með þinginu og misst af einhverjum atkvæðagreiðslum þá en ég bara skal ekki segja, 23 atkvæðagreiðslur eru ekki mikið. Þær verða örugglega yfir þúsund þegar allt er talið og ef það lenda nokkrar saman á einhverjum degi þá getur maður hæglega misst af því en ég hef verið hérna iðulega við upphaf þings í fyrirspurnatímum og var nú framan af í toppsætunum yfir þá sem höfðu talað lengst og verð það aftur áður en langt um líður.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: