- Advertisement -

„Kannski gleymdu þeir bara að rukka mig um þetta greyin“

Berghildur Fanney Oddsen á Vopnafirði skrifaði:

„Dásamlegt samfélag sem við búum í. Fyrir tveim vikum síðan var kjördæmavika og ég fékk heimsókn frá þingmönnum. Ég var beðin að segja frá því hvaða áskoranir litlar einkareknar verslanir í dreifbýli ættu við að glíma. Ég gerði það eins samviskusamlega og mér var unnt enda er rekstrarumhverfi lítilla verslanna algjörlega fáránlegt. Eitthvað af því sem ég sagði hafa þingmenn svo tekið upp og eru að athuga. Í gær var Kauptún rekstrarfélag svo nefnt í ræðu á Alþingi, sjá ræðuna hér meðfylgjandi.

Í morgun beið mín svo tölvupóstur þar sem einn af mínum stærstu birgjum hafði lagt frekari þjónustugjöld á Kauptún og sagðist bara alveg hafa gleymt að gera það fyrr eins og hann hefði átt að gera og kæmi þetta til framkvæmda 1. nóv. Af gæsku sinni ætlaði hann samt ekki að hafa þessa hækkun afturvirka. Ég reiknaði út hvað þessi þjónustugjöld væru mikil prósentuhækkun miðað við pantanir eins og ég sendi í síðustu viku og svarið var 4.54%. ATH að ég greiði líka flutningskostnaðinn á vörum frá þessum tiltekna birgja. Kannski gleymdu þeir bara að rukka mig um þetta greyin síðustu 7 ár eða býr eitthvað annað að baki, maður hlýtur að spyrja sig.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: