Alþingi:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson:
„Nú virðist stefna í að hér hefjist umræða um bókun 35. Það er þá ákvörðun meirihlutans hér í þinginu, væntanlega undir forystu hæstvirts forsætisráðherra, en afar misráðin ákvörðun og óskiljanleg í raun, að á sama tíma og Árni Páll Árnason og félagar í Brussel eru að stefna Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn, eða ESA-stofnunin, væntanlega undir forystu fyrrnefnds Árna Páls, þá skuli eiga að fara fram hér á Alþingi Íslendinga umræða þar sem ráðherrar landsins, og væntanlega einhverjir fulltrúar meirihlutans, tala máli gagnaðila okkar í væntanlegu dómsmáli. Þetta er undarlegt. Og hvað getur valdið þessu?
Er þetta framhald af reiðinni eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar? Eða er þetta, eins og stundum hefur gerst hjá þessari hæstvirtri ríkisstjórn, leið til að dreifa athyglinni frá öðrum vandræðum?“