- Advertisement -

Kostar fólk hálfa milljón á ári

Alþingi:

Halla Hrund Logadóttir Framsóknarflokki:

„Vissuð þið að veggjöld yfir Hornafjarðarfljót munu kosta sumar fjölskyldur yfir hálfa milljón kr. á ári? Við erum að tala um heimafólk sem sækir vinnu daglega líkt og við. Forsagan er þessi: Nýverið var brúin yfir Hornafjarðarfljót opnuð sem var löngu tímabær og afar mikilvæg framkvæmd. Þetta er framkvæmd sem nýtist ekki bara heimafólki, hún nýtist til að tengja saman landshluta til að við getum flutt útflutningsvörur eins og sjávarfang fyrir ferðaþjónustu og marga aðra. Frá upphafi var vitað að veggjöld yrðu hluti af jöfnunni en að það yrðu sérkjör fyrir þá sem nota brúna mikið. Nú hefur brúin verið opnuð og komið í ljós að gjaldtakan endurspeglar krefjandi veruleika þrátt fyrir afslætti fyrir nokkurn hóp fólks.

Mig langar, virðulegi forseti, til að taka tvö dæmi. Í fyrsta lagi hjón sem búa fyrir vestan Fljót en þurfa að sækja bæði vinnu inn á Höfn, eru á ólíkum bílum, vinna á ólíkum tímum, fá hámarksafslætti vegna fjölda ferða en greiða samt sem áður um 45.000 kr. á mánuði, sem er þá samtals í kringum 540.000 kr. á ári. Þetta er há tala fyrir venjulegt heimili. Mig langar til að taka annað dæmi. Atvinnurekandi sem greiðir ferðir fyrir starfsfólk hefur orðið fyrir viðbótarkostnaði á mánuði, við erum að tala um í kringum 90.000 kr. á mánuði sem er líka yfir milljón á ári.

Virðulegi forseti. Við verðum að sníða þessa vankanta af kerfinu. Veggjöld mega ekki bitna harkalega á fólkinu sem hefur beðið lengi eftir samgöngubótum á meðan við sem nýtum Ártúnsbrekkuna greiðum ekki neitt og á meðan það að nýta vegi eins og Kjalarnesveg sem kostar sambærilega tölu felur ekki í sér slíkar álögur. Hafa ber í huga að þetta er afar lítill hópur sem er á hámarksgjaldi samkvæmt Vegagerðinni og því er auðvelt að stilla þetta. 

Það myndi engum detta í hug að rukka fjölskyldur á höfuðborgarsvæðinu um rúmlega hálfa milljón aukalega á ári. Við skulum því finna útfærslu sem er sanngjarnari fyrir heimili annars staðar á landinu líka.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: