„Það er okkur í stjórn Evrópuhreyfingarinnar sönn ánægja að fá Snærós til starfa fyrir hreyfinguna til að halda utan um daglegan rekstur hennar og leggja okkur lið í baráttunni sem framundan er. Markmið Evrópuhreyfingarinnar er að Íslendingar fái, sem fyrst, að kjósa um áframhaldandi aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Ég er sannfærður um að með ráðningu framkvæmdastjóra færist aukinn þungi í þá baráttu hreyfingarinnar og markmið okkar náist,“ segir Magnús Árni Skjöld Magnússon formaður Evrópuhreyfingarinnar, segir á Facebooksíðu hreyfingarinnar.
- Advertisement -