- Advertisement -

Himinlifandi þingmenn Viðreisnar

„Mjög ánægjulegt að mælast vel og að vera annar stærsti flokkurinn samkvæmt þessari könnun. Við finnum vel að það er hljómgrunnur fyrir því sem við erum að segja og gera og þetta er staðfesting á því,“ sagði Sigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar.

„Ég er himinlifandi með það að ári eftir kosningar sé Viðreisn með meira fylgi en í kosningum og væri að bæta við sig þingmanni. Sömuleiðis stendur ríkisstjórnin vel. Ári eftir kosningar fengju ríkisstjórnarflokkarnir samanlagt meira fylgi og fleiri þingmenn (einum fleiri) en við vorum með í október 2024. Það sýnir að við njótum trausts meðal kjósenda, sem við finnum,“ sagði Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar.

Þingsætin skiptast svona miðað við skoðanakönnunina:

  • Samfylkingin      22
  • Viðreisn               12
  • Sjálfstæðisfl.       11
  • Miðflokkur          10
  • Framsókn             4
  • Flpllur fólksins 4


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: