- Advertisement -

Kristrún fær það óþvegið

„Skammastu þín til eilífðar, Kristrún Frostadóttir, þú óhæfi forsætisráðherra, fyrir viðurstyggilegan skeikjuháttinn við stríðsglæpakonuna Ursulu von der Leyen.

Skammastu þín fyrir að draga íslensku þjóðina niður í foraðið með þér.

Skammastu þín, ef þú þá kannt það!“

Þetta skrifaði Magga Stína á Facebookvegg Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.

Eins má lesa þetta:

„Ursula styður þjóðarmorð á börnum, konum, körlum og öldruðum. Hvað er forsætisráðherra að gera með þessum hryðjuverkaleiðtoga? Ísland er ekki í evrópusambandinu heldur, og þykir stórfurðulegt að þorgerður sem stundaði innherjaviðskipti sè í ríkisstjórn að spila með auðlindir landsins gegn þessari svikakonu sem styður þjóðarmorð.

Það er ótrúlegt að ísland hafi tekið á móti henni. Á ekki að bjóða hryðjuverkamanninum Netanjahoo næst og bera hann á gullslegnum stól, og verðlauna fyrir að slátra bornum???“

Karl Guðjónsson skrifar hrós til Kristrúnar:

„Kristrún og félagar hennir í hinum ríkisstjórnarflokkunun eru þjóðinni til mikils sóma. Hvort sem rætt var um inngöngu Íslands í evrópusambandið eða ekki, þá hefur það frá upphafi þessa samstarfs að ekki verður farið í aðildarviðræður, nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðu um það. Mér finnst almennt einhvernveginn andinn samt vera þannig að fólk vilji ekki fara þarna inn, sjálfur mun ég segja já og vona að sá dagur komi fyrr en seinna að ísland verði aðili að evrópusambandinu. Skil ekki þetta kjaftæði í fólki um sjálfstæði landins, almenningur hefur fátt um það að segja, þó sumir haldi það,, hérna eru það peniningaöflin sem ráð ríkjum. Margir peningamenn eru á móti inngöngu, mögulega gæti þeir misst einhvern gróða úr aski sínum við inngöngu, en einhverra hluta vegna vilja sumir þeirra samt gera fyrirtæki sín upp í evrum en ekki þessum frábæra sjálfstæða íslenska gjaldmiðli sem kallast króna“

Að lokum þetta: „Geta Íslendingar fengið að vita ástæðu þess, að forsætisráðherra nýtti ekki þetta tækifæri til að ræða þjóðarmorðið í Palestínu við frú von der Leyen?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: