„Er ekki líka tímabært að fulltrúar útgerðarinnar hætti þessu sífri sínu? Eru ekki allir komnir með nóg? Ég held að svona tal hljómi fyrir mörgum venjulegum Íslendingum bara sem frekja og sjálfsvorkunn.“
Jón Gnarr alþingismaður Viðreisnar.
Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar skrifaði:
Ég hef aldrei verið mikill stærðfræðingur. Einsog flest venjulegt fólk finnst mér líka alltaf soldið svakalegt þegar verið er að reikna peningaupphæðir í milljörðum.
Það er mér alltaf minnisstætt þegar við í Besta flokknum fórum á okkar fyrsta kynningarfund um fjárhagsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur. Þar var milljörðunum kastað fram og aftur líkt og klinki í vasa. Eitt okkar, ónefnt, en samt ekki ég, rétti upp hönd á miðjum fundinum og bar fram spurningu:
-Er milljarður hundrað milljónir eða þúsund milljónir?
Það mátti heyra saumnál detta.
Þúsund milljónir var svo svarið.
…hagnaðist um 4,5 milljarða króna árið 2023.
Einsog ég hef margítrekað þá finnst mér leiðrétting veiðigjalds vera sanngjörn aðgerð. Þetta er leiðrétting því það er ekki verið að hækka þá prósentu sem myndar veiðigjaldið. Hún verður áfram 33% af afkomu fiskveiða. Það er einfaldlega bara verið að segja að veiðigjaldið reiknist af raunverulegum aflaverðmætum, þeas markaðsverðs aflans.
Ég rakst á þessa frétt í dag. Formaður SFS er áhyggjufullur. Blaðamaður notar orðið hækkun og það er útgangspunkturinn. Vinnslustöðin er að segja upp 50 manns.
Samt segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, uppsagnirnar tilkomnar fyrst og fremst vegna hækkana á launakostnaði og sterkri krónu, en að hærri veiðigjöld hafi síðan að lokum gert útslagið. Sem sagt ekki aðalatriði. En samt alltaf leiðinlegt að heyra af uppsögnum.
Samstæða Vinnslustöðvarinnar hagnaðist um 4,5 milljarða króna árið 2023 og nam samanlögð velta hennar þá um 35 milljörðum króna. Um er að ræða bestu afkomu félagsins frá upphafi.
Á aðalfundi félagsins 2024 var samþykkt að greiða hluthöfum 900 milljónir í arð vegna ársins 2023. Og þetta er bara fyrir eitt ár. Tæpur milljarður í arð.
Ég hef unnið fyrir mér í circa 40 ár. Miðað við að ég hafi verið með milljón á mánuði, sem er samt nokkuð vel í lagt, tekjur mínar hafa sveiflast mjög, þá hef ég unnið mér inn 480 milljónir á þessum tíma. Ég hef verið með óreglulegar tekjur, stundum fínar en stundum afleitar. Einsog gengur hjá sjálfstætt starfandi einyrkjum einsog mér.
Nær hvert einasta mannsbarn á landinu styður leiðréttingu veiðigjaldsins.
Enda líktist hún gjarnan rausi í sauðdrukknum manni.
Sjálfstæðisflokkurinn barðist hatrammlega gegn þessu frumvarpi, fór hreinlega í krossferð gegn því. Sú orðræða og málþófið sem henni fylgdi fannst mörgum skammarleg. Enda líktist hún gjarnan rausi í sauðdrukknum manni. Flokkurinn tapaði stórt. Frumvarpið varð að lögum þannig að ekki tókst honum að verða máttugur varðhundur útgerðarinnar.
Flokkurinn missti líka traust og virðingu hjá mörgum sem var hreinlega misboðið. Að auki ganaði flokkurinn útí þetta stríð, illa undirbúinn, vopnlaus og óskipulagður og virtist helst knúinn áfram af einhverri kjánalegri þrjósku, hraða og ráðaleysi.
Ólíkt því sem margir virðast halda eða óttast jafnvel þá er ég enginn óvildarmaður Sjálfstæðisflokksins. Mér finnst meira að segja smá vænt um hann. Móðurfjölskylda mín var meira og minna allt gamalgróið Sjálfstæðisfólk. Margir vinir mínir og fjölskyldumeðlimir eru Sjálfstæðismenn. Ég gladdist því mjög að heyra nýskipaðan þingflokksformann Ólaf Adolfsson, sem er toppmaður segjst í fréttum vera lausnamiðaður, vonast eftir því að við náum samtali um að hefja þingið aðeins upp og við horfum til þess að tala kurteisislega til hvers annars og taka betra tillit til hvors annars og endaði á að segja:
„Ég held að íslenska þjóðin sé alla vegana orðin þreytt á málþófi í bili.“
Ég fagna þessum orðum og er töluvert létt að heyra þetta og hlakka til að vinna saman að hag lands og þjóðar. Og líka að takast málefnalega á um leiðir og aðferðir.
Er ekki líka tímabært að fulltrúar útgerðarinnar hætti þessu sífri sínu? Eru ekki allir komnir með nóg? Ég held að svona tal hljómi fyrir mörgum venjulegum Íslendingum bara sem frekja og sjálfsvorkunn.
Greinin er fengin af Facebooksíðu Jóns Gnarr.