- Advertisement -

Meðalfjöldi daga sem foreldrar nýta í fæðingarorlofi

Stjórnarráðið:Yfirlit yfir nýtingu fæðingarorlofs má sjá í skýrslunni Brúum umönnunarbilið sem kynnt var í vikunni og inniheldur tillögur aðgerðahóps sem forsætisráðherra skipaði í sumar. Meðalfjöldi daga sem nýttir eru af mæðrum eru þar teknir saman, sem og meðalfjöldi daga sem nýttir eru af feðrum.

Í skýrslunni sést að mæður hafa aldrei nýtt fleiri daga í fæðingarorlofi en í gildandi kerfi og á sama tíma komast flestir feður mjög nærri því að fullnýta sjálfstæðan rétt sinn innan kerfisins sem eru sex mánuðir. Sjálfstæður réttur foreldris er réttur sem er óframseljanlegur til hins foreldrisins.

Veigamestu breytingar sem gerðar hafa verið á fæðingarorlofskerfinu voru gerðar árin 2000, 2020 og 2021:

Breytingin árið 2021 fól í sér að foreldrar hafa sjálfstæðan rétt til töku 6 mánaða fæðingarorlofs (182 dagar) en geta framselt 6 vikur (42 daga) sín á milli. Það þýðir að hámark hvors foreldris eftir framsal er 224 dagar og lágmark hvors foreldris eftir framsal er 140 dagar.

Þeim dögum sem feður nýttu til fæðingarorlofs fjölgaði verulega eftir breytingarnar árið 2020. Í skýrslunni er bent á að milli áranna 2019 og 2022 hafi meðalfjöldi daga sem feður voru í fæðingarorlofi aukist úr 91 í 131 dag

Þetta þýðir að árið 2022 (síðasta árið sem endanlegar tölur liggja fyrir um nýtingu fæðingarorlofs) voru feður að meðaltali í fæðingarorlofi í 94% þeirra daga sem þeir eiga rétt á og geta ekki framselt áfram til móður.

Flestir feður komast þannig mjög nærri því að fullnýta það fæðingarorlof sem þeir geta ekki framselt.

Í skýrslunni er undirstrikað að tölur fyrir árin 2023 og 2024 séu bráðabirgðatölur og að varast beri að rýna of mikið í þær. Þetta er vegna þess að heimilt er að taka fæðingarorlof fram að 24 mánaða aldri barns og tölur vegna fæðingarorlofs eru því ekki marktækar fyrr en tveimur árum eftir barnsfæðingu. Tölur fyrir árin 2023 og 2024 eru því bráðabirgðatölur en ekki lokatölur.

Í skýrslunni sést að mæður nýta yfirleitt sameiginlegan rétt foreldra eða þann rétt sem hægt er að framselja á milli foreldra. Tölur fyrir mæður eru eftirfarandi:

Fullur réttur foreldra árið 2019 voru 274 dagar og nýting sem nemur samtals 271 degi er 99% af réttinum til fæðingarorlofs.

Fullur réttur foreldra árið 2020 voru 304 dagar og nýting sem nemur samtals 296 dögum er 97% af réttindum til fæðingarorlofs.

Fullur réttur foreldra árið 2022 voru 365 dagar og nýting sem nemur samtals 349 dögum er 96% af réttindum til fæðingarorlofs.

Aðgerðahópurinn sem vann skýrsluna var skipaður fulltrúum forsætisráðuneytisins, mennta- og barnamálaráðuneytisins, félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, innviðaráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga.




Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: