Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis, hefur boðað aðra þingmenn kjördæmisins sem og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríksiráðherra, til fundar vegna tolla sem Evrópusambandið hefur boðað á járnblendi og kísiljárn.
Ólafur sagði meðal annars í viðtali við Vísi: „Ég held að beinu störfin séu rétt um 200 og síðan afleidd störf auðvitað. Það eru gríðarleg verðmæti sem þarna er verið að flytja erlendis.“ Hann nefndi að auki séu fjöldi annarra starfa vegna þessa.
Aðeins þrjár vikur eru þar til tollarnir verði settir á, takist ekki að semja um annað við ESB.