Það sem SFS skuldar þjóðinni skýringar á nú, er hvers vegna dæmi eru um að fyrirtæki innan SFS greiði aðeins 74 kr/kg fyrir makríl þegar ljóst er að nákvæmlega sami makríll er verðlagður á 270 kr/kg í Færeyjum.
Sigurjón Þórðarson, alþingismaður fyrir Flokk fólksins, skrifar:
Framkvæmdastjóri SFS setur á sig geislabaug og er nánast heilagri en páfinn í grein þar sem hún mælir gegn því að rýmka til fyrir takmörkuðum strandveiðum.
Þegar betur er að gáð þá er þessi málflutningur rammfalskur þar sem stjórnarmenn SFS hafa farið fram á sveigjanleika fyrir sig og hafa ekki gert athugasemd við heimild til að flytja tugi þúsunda af veiðiheimildum í þorski á milli fiskveiðiára. Þeir hafa heldur ekki mælt gegn heimild til þess að landa þúsundum tonna af þorski utan kvóta í Verkefnasjóð sjávarútvegsins.
Sama á við um að gefnar séu út veiðiheimildir í djúpkarfa upp á hátt i 4 þúsund tonn þrátt fyrir að Hafró ráðlagði veiðibann.
Má vera að framkvæmdastjóri SFS sé að reyna færa umræðuna frá vafasamri milliverðlagningu fyrirtækja í samþættri vinnslu og veiði og að strandveiðum?
Það sem SFS skuldar þjóðinni skýringar á nú, er hvers vegna dæmi eru um að fyrirtæki innan SFS greiði aðeins 74 kr/kg fyrir makríl þegar ljóst er að nákvæmlega sami makríll er verðlagður á 270 kr/kg í Færeyjum.
Hafnargjöld og laun sjómanna miðast við verðmæti aflans og því litur flest út fyrir að það sé ekki aðeins verið að hlunnfara sjómenn heldur einnig sjávarútvegssveitarfélögin.