Þetta má lesa í nýjustu fundargerð borgarráðs:
- „Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óska eftirfarandi upplýsinga um lóðarleigusamninga undir atvinnuhúsnæði að Ártúnshöfða:
- 1. Sundurliðað yfirlit yfir alla lóðarleigusamninga á Ártúnshöfða (heimilisfang, fastanúmer, landnúmer)
- 2. Upplýsingar um það hvenær lóðarleigusamningur var undirritaður upprunalega?
- 3. Hvenær rennur lóðarleigusamningur út?
- 4.Hefur lóðarleigusamningur verið framlengdur, til hve langs tíma?
- 5. Er uppkaupsákvæði í samningnum? Ef ekki, hvaða kvaðir hvíla á lóðarhöfum um frágang lóðar?
- 6. Hvert er fasteignamat eignanna sem standa á lóðinni?
- 7. Hversu margar kennitölur starfa í fasteignunum sem standa á lóðinni?
- 8. Hefur borgin unnið með lóðarhöfum að því að finna fyrirtækjum þeirra nýjan stað í borginni, í aðdraganda þess að lóðarleigusamningur rennur út?“