Alþýðusambandið:
Guðmundur Þ. Ragnarsson skrifaði
Það er sorglegt að horfa upp á það hvernig þeir popúlistar, sem náðu völdum í verkalýðshreyfingunni um og eftir 2018, eru að valda launafólki og þjóðinni allri miklum skaða sem er að koma fram hægt og rólega.
Leiksýningin sem var sett á svið vegna forsendubrest kjarasamninga lýsir stöðunni vel.
Verið er að pissa í skóinn sinn en það er skammgóður vermir, vitandi að kuldinn tekur aftur við. Hversu lengi endast fallegu fyrirheitin sem eiga sér engar raunhæfar forsendur?
Hversu oft hefur þetta sama verið reynt áður?
Enn einu sinni
er farið af stað í
sömu hringekjuna.
Enn einu sinni er farið af stað í sömu hringekjuna. Sömu innihaldslausu ræðurnar eru fluttar og sömu frasarnir endurteknir. Enginn virðist tilbúinn að greina vandann af alvöru, viðurkenna mistökin eða ræða hvaða raunhæfu leiðir gætu leitt til stöðugleika á vinnumarkaði og í efnahagsmálum, nema þá helst Seðlabankinn. Frasarnir halda áfram að ráða ferðinni því þeir eru það eina sem sumir hafa fram að færa.
Verkalýðshreyfingin er orðin að sundruðum hrærigraut með klofningi þvert og kruss um alla hreyfinguna. Slíkt er ávísun á áframhaldandi efnahagslegan óstöðugleika. Ég á erfitt með að skilja hvers vegna iðnaðarmannafélögin geti ekki staðið saman. Þar og annars staðar virðast persónuleg átök oft vega þyngra en sameiginlegir hagsmunir launafólks.
Það er sérstakt að fylgjast með sumum af helstu leikendum þessarar sýningar. Vilhjálmur Birgisson hafði fyrir 2018 gagnrýnt alla kjarasamninga og sakað aðra um svik við launafólk. Nú reynir hann að koma fram sem einhver frelsari en er sjálfur búinn að taka þátt í því að eyðileggja allar raunhæfar lausnir sem settar hafa verið fram. Hann virðist hafa gleymt því að félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness samþykktu samninga sem hann sjálfur beitti sér gegn um árið. Enn virðist sama aðferðafræðin ráðandi, hávær gagnrýni án þess að raunhæfar lausnir fylgi með.
Sama má segja um Sólveigu Önnu Jónsdóttur. Hún talar gjarnan eins og saga verkalýðsbaráttunnar hafi hafist með hennar formennsku í Eflingu. Talað niður til allra og ásakað fyrrverandi forystufólki stéttafélaga um svik við launafólk.
Það er mikilvægt að rifja upp staðreyndir. Á árunum 2015 til 2018, í rammasamningunum sem áttu að vera undanfari SALEK-verkefnisins, hækkuðu lægstu laun um 36% og önnur laun um 32%. Þessar hækkanir náðust án þess að skapa þann efnahagslega óstöðugleika sem við höfum síðar upplifað. Þar var um að ræða sameiginlegt átak atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar til að endurheimta kaupmátt eftir bankahrunið 2008.
Ég tel ólíklegt að núverandi forysta nái sambærilegum árangri í kaupmáttaraukningu félagsmanna sinna.
Frá árinu 2018 hafa þessir
aðilar lamað
Alþýðusamband Íslands.
Frá árinu 2018 hafa þessir aðilar að mínu mati lamað Alþýðusamband Íslands. Ekki sér fyrir endann á þeirri stöðu og alvöru einstaklingar eru ekki tilbúnir til að taka að sér forystuhlutverk við þær aðstæður sem þar ríkja, þó full þörf sé á því. Það eitt segir sína sögu um ástandið.
Ekki má heldur gleyma hlutverki Ragnars Þórs Ingólfssonar. Uppgangur hans og annarra nýrra leiðtoga byggðist að miklu leyti á mjög harðri gagnrýni á fyrrverandi forseta ASÍ,
Gylfa Arnbjörnsson. Skilaboðin voru einföld, allt sem fór úrskeiðis í efnahagsmálum væri honum að kenna. Sú nálgun skilaði völdum, en ekki þeim lausnum sem lofað var.
Sumum kann að finnast gagnrýni mín á þessa einstaklinga hörð. Það ber þó að hafa í huga að þeir komust sjálfir til valda með mjög harðri og oft óvæginni gagnrýni á fyrri forystu verkalýðshreyfingarinnar. Gylfi Arnbjörnsson og aðrir leiðtogar þess tíma voru sakaðir um svik við launafólk, að vera úr tengslum við félagsmenn og bera ábyrgð á nær öllum meinum vinnumarkaðarins. Það var á þessum boðskap sem ný forysta byggði fylgi sitt og náði völdum. Þegar fólk sækist eftir forystu á slíkum forsendum verður það einnig að sæta því að eigin verk og árangur séu metin af sömu hörku.
Ef við skoðum söguna þá er maður undrandi á því að ráðherrann Ragnar Þór Ingólfsson skuli ekki standa alla daga frá morgni til kvölds á Austurvelli við að berja tunnur eins og ástandið er í efnahagsmálunum, verðbólga og háir vextir. Hann var óþrjótandi að hvetja alla til þess þegar hann var formaður VR. En þegar menn fá digran starfslokasjóð þá þurfa menn ekki að hafa áhyggjur af slæmu ástandi í efnahagsmálunum.
Því miður fara hlutirnir oft þannig þegar almenningur lætur heillast af slagorðum og einföldum lausnum í stað þess að krefjast raunhæfrar stefnu og ábyrgðar.
Þar liggur kjarni málsins.
Ef markmiðið er að ná varanlegum efnahagslegum stöðugleika þarf verkalýðshreyfingin á hæfu og ábyrgðarfullu forystufólki að halda. Reynslan sýnir að stöðugleiki næst ekki með háværum frösum heldur með samvinnu, trausti og sameiginlegri framtíðarsýn.
SALEK-verkefnið strandaði meðal annars vegna skorts á pólitískri ábyrgð og samstöðu. Slíkt vinnumarkaðslíkan getur aðeins virkað ef stjórnmálamenn, atvinnurekendur og launþegar axla allir ábyrgð á sínum hluta verkefnisins.
Jafnframt verða stjórnvöld að hætta að koma að gerð kjarasamninga með loforðum sem eru hvorki fjármögnuð né hluti af langtímastefnu. Uppbygging húsnæðiskerfis, félagslegs öryggis og stöðugleika í efnahagsmálum á að vera sjálfstætt verkefni stjórnvalda, ekki skammtímalausn í kjaraviðræðum.
Í stöðugu efnahagsumhverfi eiga kjarasamningar fyrst og fremst að vera á ábyrgð launþega og atvinnurekenda. Þessi tvö öfl geta síðan sameinast um að halda stjórnvöldum við efnið og krefjast efnahagsstefnu sem styður við stöðugleika í stað þess að grafa undan honum.
Munurinn á milli áranna fyrir og eftir 2018 er ekki sá að verkalýðshreyfingin hafi orðið gagnrýnni. Hún var það alltaf. Munurinn er sá að þeir sem lofuðu nýrri hugsun, nýjum lausnum og betri árangri hafa eftir nær áratug í forystu ekki sýnt fram á að þeir hafi skapað stöðugri vinnumarkað eða betri efnahagslegan árangur fyrir launafólk. Þar liggur kjarni málsins.