- Advertisement -

Ég varð satt að segja hálf furðulostinn

Stjórnmál:

Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari og borgafulltrúi Viðreisnar, skrifaði:

Rakst á þessa frétt hér á Facebook og sá að hún hafði fengið um 1.200 viðbrögð, yfir 500 athugasemdir og verið deilt um 60 sinnum. Ég hugsaði með mér hvað það væri fallegt að sjá svona mikinn stuðning við Úkraínu og Palestínu frá okkur hér á þessu litla skeri úti í ballarhafi. En svo kíkti ég á viðbrögðin. Reiðikallarnir voru áberandi og margar athugasemdirnar ansi ljótar. Ég varð satt að segja hálf furðulostinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég skil vel að fólk hafi áhyggjur af efnahagsástandinu hér heima og auðvitað má ræða hvernig skattfé okkar er varið. En við erum engu að síður rík þjóð og mér finnst að samkennd okkar ætti að ná lengra en að eigin landsteinum. Þetta snýst líka um meira en samkennd. Við erum sjálf lítil þjóð sem á mikið undir því að alþjóðalög séu virt og að stærri ríki geti ekki einfaldlega farið sínu fram gagnvart þeim minni.

Við megum alveg deila um fjárhæðir og forgangsröðun. En gleymum ekki að þarna er fólk sem býr við stríð og hörmungar sem fæst okkar geta ímyndað sér. Það er allavega mín skoðun!


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: