- Advertisement -

„Þess vegna eigum við einfaldlega að segja takk“

Umræðan: Vilhjálmur Birgisson skrifar:

„Við Íslendingar eigum að segja takk Kerecis, takk Guðmundur Fertram Sigurjónsson og hans öfluga starfsfólk og takk Vestfirðingar.

Þessi 40 milljarða skattgreiðsla er ekki bara tala á blaði heldur áþreifanleg sönnun þess að öflug verðmætasköpun skiptir sköpum fyrir íslenskt samfélag. Hún sýnir hvernig gjaldeyrisskapandi starfsemi styrkir ríkissjóð, eykur svigrúm til innviðauppbyggingar og styður við velferðarkerfið okkar.

Verðmætasköpunarinnar verður til á landsbyggðinni.

En þetta snýst ekki eingöngu um eitt fyrirtæki eða eina atvinnugrein. Þetta á við um sjávarútveginn, sem hefur áratugum saman verið burðarás útflutningstekna þjóðarinnar. Þetta á við um stóriðjuna, sem skilar stöðugum gjaldeyri og byggir undir orkukerfið og samfélög víða um land. Þetta á við um ferðaþjónustuna, sem hefur orðið ein helsta stoð hagkerfisins og skapað þúsundir starfa. Og þetta á við um nýsköpunarfyrirtæki sem vaxa upp úr íslenskri þekkingu og hugviti.

Takið sérstaklega eftir því að stór hluti verðmætasköpunarinnar verður til á landsbyggðinni. Þar eru auðlindirnar, þar eru framleiðslufyrirtækin, þar eru hafnirnar, verksmiðjurnar, fiskvinnslan, orkuframleiðslan og sífellt fleiri hátæknifyrirtæki. Landsbyggðin er ekki jaðar hagkerfisins – hún er ein af undirstöðum þess.

Þegar við ræðum skatttekjur, opinber útgjöld og uppbyggingu samfélagsins verðum við að muna hvaðan verðmætin koma. Þau verða til í vinnu fólksins í landinu, í útflutningsgreinum sem standa undir gjaldeyristekjum og skapa raunverulegan styrk fyrir íslenskt samfélag.

Þess vegna eigum við einfaldlega að segja takk.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: