- Advertisement -

Hilmar Veigar og Morgunblaðið

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Hilmar Veigar Pétursson er andlit sýndartölvuleiksins EVE Online. Sá leikur er í eigu Fenris Creations, sem hét áður CCP Games og þar á undan Loki margmiðlun. Saga fyrirtækisins er áhugaverð og nær aftur til ársins 1997.

Fjárhagslegur árangur er ekki endilega aðalatriðið í sögu þessa fyrirtækis, en athyglisvert er að það var selt til suðurkóreska fyrirtækisins Pearl Abyss árið 2018.

Þrátt fyrir söluna hélst meginstarfsemin áfram á Íslandi. Í maí á þessu ári seldi Pearl Abyss fyrirtækið síðan frá sér, með um 38 milljarða króna tapi, til stjórnendateymis Fenris Creations og ónafngreindra langtímafjárfesta. Fyrirtækið mun áfram hafa höfuðstöðvar sínar á Íslandi og þar með innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

ilmar veit sem er…

Það er traustsyfirlýsing gagnvart Íslandi og Evrópu sem vert er að taka mark á. Hún sýnir að það er eftirsóknarvert fyrir nýsköpunarfyrirtæki að staðsetja sig í þessum heimshluta vegna innviða, þekkingar og menntunarstigs. Hilmar veit sem er að í fyrirtækjarekstri er það ekki stærðin sem skiptir mestu máli heldur aðgengi að slíkum innviðum. Hvort fyrirtæki verður síðan það stærsta í heiminum er aukaatriði, enda fylgir slíkri stöðu oft rof á samkeppni og skattaundanskot.

Hilmar Veigar hefur ítrekað lýst skoðunum sínum á íslensku krónunni og talið hana bæði hættulegan og óhagkvæman gjaldmiðil. Grípum hér nokkrar umsagnir frá honum í gegnum árin:

„Ég held að þetta konsept að vera með minnstu mynt í heimi sé löngu komið á síðasta söludag… Mér persónulega finnst liggja beinast við að taka upp evru… Það er búið að reyna þetta í hundrað ár og hefur ekki virkað fyrir neinn að mínu mati og þá sérstaklega ekki fyrir okkur. Því fyrr sem við hættum þessu, því betra.“

„Ekki ætlum við að nota krónur? Er það? Er það planið?“

Í sömu umræðu gagnrýndi hann íslensku krónuna harðlega og sagði meðal annars að hún skapaði óstöðugleika fyrir alþjóðleg fyrirtæki á borð við CCP, nú Fenris Creations. Hann nefndi einnig að gjaldmiðillinn í EVE Online héti „ISK“ vegna þess að þeim hefði á sínum tíma fundist líklegt að íslenska krónan yrði ekki lengi við lýði.

Svo mörg voru þau orð.

Því skýtur það
skökku við…

Því skýtur það skökku við þegar Hilmar Veigar talar nú í viðtali við Morgunblaðið og á fundi neikvæða hópsins niður til Evrópusambandsins á þeirri forsendu að þar sé ekki að finna stærstu fyrirtæki heims. Þar virðist hann fyrst og fremst eiga við fyrirtæki sem hafa byggt upp yfirburðastöðu á mörkuðum, stunda skattasniðgöngu eða flytja hagnað frá þeim löndum þar sem verðmætin verða til. Hann virðist einnig tala um fyrirtæki sem eru orðin stærst í gervigreindinni, en þau eru mörg byggð á sandi og ekki endilega langlíf. Tímabundið eru þau samt stór.

Þessi málflutningur stangast á við það sem Hilmar sjálfur hefur sagt og gert í gegnum tíðina. Raunar er erfitt að samræma tjáninguna þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið í rekstri CCP Games og síðar Fenris Creations.

Nýlega var tilkynnt að Fenris Creations hefði ráðið Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur uppgjafarþingmann til starfa. Hvort það tengist þessari nýju áherslu í málflutningi Hilmars skal ósagt látið en tímasetningar eru athyglisverðar. Hitt er hins vegar ljóst að hann lét þessi sjónarmið í ljós í viðtali við Morgunblaðið, fjölmiðil sem hefur lengi verið andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu og er stjórnað af föður Áslaugar Örnu.

Ég tek aftur á móti meira mark á ákvörðunum og yfirlýsingum Hilmars Veigars yfir langt tímabil en tækifærisviðtali eða tímabundnum vendingum í umræðunni. Saga CCP Games og Fenris Creations segir nefnilega aðra sögu.

Ég spyr mig nú samt hverjum hann er að þóknast með tímabundinni umpólun sinni,  eru það nýju fjárfestarnir sem hann þjónar núna? Er kannski Guðmundur Fertram meðal þeirra, en sá hefur talað á sömu nótum þrátt fyrir að Evrópusambandið hafi mögulega bjargað fyrirtæki hans frá gjaldþroti?

Ef Hilmar teldi í raun að framtíð fyrirtækisins væri utan þessa svæðis hefði hann haft nægan tíma og tækifæri til að flytja starfsemina annað. Hann gerði það ekki og ekki heldur Pearl Abyss.

Það segir meira en tækifærisviðtal.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: